Fréttir (Síða 31)
Fyrirsagnalisti
Staða á innleiðingu Barnasáttmálans
Umboðsmaður barna hefur sent bréf til allra ráðuneyta og ríkisstofnana þar sem farið er fram á að gerð sé grein fyrir þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til og sem miða að því að innleiða Barnasáttmálann í starfseminni.
Norrænt barnaþing í Kaupmannahöfn
Norrænt barnaþing á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar var haldið í Kaupmannahöfn í gær.
Umboðsmaður barna í aldarfjórðung
Nú um áramótin var aldarfjórðungur liðinn frá því að embætti umboðsmanns barna var komið á fót þann 1. janúar 1995.
Síða 31 af 31
- Fyrri síða
- Næsta síða
Eldri fréttir (Síða 78)
Fyrirsagnalisti
Yfirlýsing Viku 43 - undirritun með velferðarráðherra
Í tilefni af Viku 43, Vímuvarnaviku 2011 hafa fulltrúar tuttugu félagasamtaka, umboðsmaður barna og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirritað yfirlýsingu þar sem hvatt er til þess að réttur barna til lífs án neikvæðra afleiðinga áfengis- og vímuefnaneyslu sé virtur.
Eignarréttur barna
Mikilvægt er að allir hafi í huga og geri sér grein fyrir því að börn njóta sömu mannréttinda og fullorðnir. Börn eiga því rétt á að ráðstafa eignum sínum á þann hátt sem þau kjósa, sbr. 72. gr. stjórnarskrárinnar, en þó innan skynsamlegra marka.
Réttur barna til að lifa og þroskast - Ályktun vegna vímuvarnarviku
Börn eiga rétt til verndar gegn misnotkun áfengis heima og að heiman sem og rétt barna til upplýsinga um skaðsemi áfengis, tóbaks og annarra ávana og fíkniefna. Þau eiga jafnframt rétt á vernd gegn auglýsingum um þessi efni.
Fjármál barna
Meginreglan er sú að þar sem börn eru ófjárráða mega þau ekki ráða fé sínu, sbr. 1. gr. lögræðislaga nr. 71/1997. Undantekningar frá þessari reglu er að finna í 75. gr. lögræðislaganna. Samkvæmt því ákvæði ráða börn sjálfsaflafé sínu, gjafafé sínu og því fé sem lögráðamaður hefur látið það fá til ráðstöfunar.
Dagur gegn einelti - 8. nóvember 2011
Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa fyrir degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti.
Vika 43 – virðum rétt barna til lífs án neikvæðra afleiðinga áfengis- og vímuefnaneyslu
Að þessu sinni er í viku 43 athygli beint að rétti barna og ungmenna til vímulauss lífs og verndun þeirra gegn neikvæðum áhrifum neyslu áfengis og annarra vímuefna.
Lýðræði í grunnskólum - Bréf
Umboðsmaður barna hefur sent öllum grunnskólum tölvupóst þar sem hann óskar eftir upplýsingum um nemendafélög og aðkomu nemenda að skólaráðum. Hugmyndin er að safna upplýsingum og dæmum um góð vinnubrögð til að miðla áfram á heimasíðu embættisins.
Stuðningsúrræðið tilsjón í barnaverndarmálum - Málstofa
Málstofa um barnavernd verður haldin mánudaginn 31. október kl. 12:15 - 14:15. Yfirskriftin er Stuðningsúrræðið tilsjón í barnaverndarmálum
Síða 78 af 111