24. október 2011

Dagur gegn einelti - 8. nóvember 2011

Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa fyrir degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti.

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti undirritaður

Dagur gegn einelti - 8. nóvember  2011

Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa fyrir degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis,  mennta- og menningarmálaráðuneytis og  velferðarráðuneytis og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í júní 2010.

Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.   Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum.

Við undirritunina verða einnig afhent armbönd sem gerð hafa verið í tilefni dagsins og bera yfirskriftina:  Jákvæð samskipti. Þeim verður í kjölfarið dreift til almennings.

Verkefnastjórnin hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember baráttunni gegn einelti.  Sérstaklega er þessu beint til leikskóla,  grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana á vegum ríkisins.  Ýmislegt er að hægt að gera í tilefni dagsins, s.s. að halda upp á hann með táknrænum hætti eða beina umræðunni að einelti og afleiðingum þess í samfélaginu.

Sáttmálinn  verður einnig aðgengilegur á sérstökum vef eftir undirritunina 8. nóvember og þá mun almenningi gefast tækifæri til að skrifa undir hann á vefnum.  Slóðin verður auglýst síðar.

Verkefnisstjórnin vonast til að sem flestir í samfélaginu taki þátt í því að setja umræðuna um einelti í brennidepil þennan dag - málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica