Hagnýt ráð þegar ungmenni eru boðuð á fund

Ráðgjafarhópurinn sendir þessi skilaboð þegar ungmenni eru boðuð á fund.

  • Boða fundi á hentugum tíma fyrir ungmenni.
  • Ef fundur er á skólatíma þarf að senda staðfestingu á skóla viðkomandi ungmenna sem boðaðir eru á fundinn.
  • Ráðamenn eiga að vera opnir fyrir hugmyndum og skoðunum ungmenna. 
  • Í fundardagskrá sé gert ráð fyrir umræðu um málefni fundarins.
  • Ráðamenn skulu ávallt vera kurteisir og hlusta á ungmenni fundarins og forðast það að grípa fram í.
  • Mikilvægt er að ráðamenn gefi ungmennum skýr svör og forðist endurtekningar.
  • Nýta á þær upplýsingar sem ungmennin veita. 
  • Mikilvægt er að láta ungmennin vita um hvað sé gert við niðurstöður fundarins.
  • Ekki segjast ætla að bjóða tilteknum hópi aftur og standa svo ekki við það.
  • Tala við ungmenni sem jafningja, ekki við þau fullorðnu og þið ungmennin.

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica