24. febrúar 2020

Skrifstofan flytur tímabundið til Egilsstaða

Umboðsmaður barna flytur skrifstofu embættisins til Egilsstaða vikuna 9.-13. mars n.k. Markmið flutninganna er að hitta þá sem starfa að málefnum barna í Fljótsdalshéraði og heimsækja skóla á svæðinu.

Umboðsmaður barna flytur skrifstofu embættisins til Egilsstaða vikuna 9.-13. mars n.k. Markmið flutninganna er að hitta þá sem starfa að málefnum barna í Fljótsdalshéraði og heimsækja skóla á svæðinu. Þó sameining sveitarfélaganna á svæðinu hafi ekki tekið formlegt gildi munu starfsmenn embættisins einnig leggja leið sína til Seyðisfjarðar, Djúpavogs og Borgarfjarðar eystri.

Umboðsmaður barna og starfsmenn embættisins munu hafa starfsaðstöðu í Samfélagssmiðjunni (Blómabæjarhúsinu), húsnæði á vegum Fljótsdalshéraðs, á meðan á dvölinni stendur. Þá verður opið hús eftir hádegi fimmtudaginn 12. mars í Samfélagssmiðjunni fyrir íbúa sveitarfélagsins sem það kjósa.
Það er von umboðsmanns barna að þessi nýbreytni muni mælast vel fyrir og ráðgerir embættið að flytja starfsemi sína í viku til Ísafjarðar næsta haust með sama markmið að leiðarljósi. Auk þess eru styttri heimsóknir í sveitarfélög á SV-landi í bígerð á næstu mánuðum, m.a. í Reykjanesbæ.

„Þessari hugmynd var strax vel tekið af forsvarsmönnum Fljótsdalshéraðs og sveitarfélagið útvegar okkur starfsaðstöðu á meðan á dvölinni stendur. Þá hefur verið skipulögð mjög flott dagskrá fyrir okkur. Við erum því mjög spennt fyrir ferðinni og erum viss um að þetta muni efla mjög tengsl okkar við sveitarfélagið og íbúa þess. Það verður mjög gaman að kynnast því öfluga starfi sem þarna er unnið í þágu barna, hitta börn á öllum aldri og fulltrúa úr ungmennaráði sveitarfélagsins,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.

Hlutverk umboðsmanns barna er að efla þátttöku barna í samfélaginu og vinna að því að tekið sé fullt tillit til réttinda, þarfa og hagsmuna þeirra á öllum sviðum.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica