Fréttir: 2026 (Síða 3)

Fyrirsagnalisti

4. maí 2026 : Umboðsmaður barna kallar eftir endurskoðun á nauðgunarákvæði 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940

Umboðsmaður barna hefur sent dómsmálaráðherra bréf þar sem kallað er eftir skýrari reglum um samþykki barna skv. 194. gr. hegningarlaga og að réttarvernd barna verði aukin. 

29. apríl 2026 : Bréf til byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna útgáfu vottorðs um öryggisúttekt

Umboðsmaður barna sendi bréf á byggingarfulltrúa Reykjavíkur í síðustu viku og óskaði eftir upplýsingum um hvort og þá hvenær gefið hafi verið út vottorð um öryggisúttekt viðbyggingar á Stuðlum.

28. apríl 2026 : Afhending skýrslu með niðurstöðum barnaþings 2025

Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna, ásamt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, afhentu ráðherrum skýrslu með niðurstöðum barnaþings í dag í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

27. apríl 2026 : Heimsókn í Barnahús

Skrifstofa umboðsmanns barna heimsótti Barnahús í síðustu viku og átti góðan fund með starfsfólki.

24. apríl 2026 : Bréf vegna barna sem njóta ekki réttinda sinna til menntunar með fullnægjandi hætti

Umboðsmaður barna sendi bréf til mennta- og barnamálaráðuneytisins í vikunni vegna barna sem ekki fá skólavist við hæfi, eru með skerta stundatöflu eða hefur verið vísað úr skóla.

21. apríl 2026 : Vegna ábendinga um öryggi barna á líkamsræktarstöðvum

Umboðsmaður barna hefur sent erindi til allra heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga þar sem athygli er vakin á því að embættinu hafi borist ábendingar um að ekki sé nægilega gætt að öryggi barna á líkamsræktarstöðvum. 

15. apríl 2026 : Sveitarstjórnarkosningar og lýðræðisleg þátttaka barna

Umboðsmaður barna hvetur öll sveitarfélög, ungmennaráð sveitarfélaga og grunnskóla landsins til að standa fyrir viðburðum sem efla lýðræðislega þátttöku barna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2026.

1. apríl 2026 : Páskakveðja

Umboðsmaður barna óskar öllum gleðilegra páska.

19. mars 2026 : Skýrsla HMS vegna brunans á Stuðlum

Í gær kom út skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) þar sem greint er frá niðurstöðum rannsóknar HMS á brunanum sem varð á Stuðlum 19. október 2024, þar sem 17 ára drengur lést. 

Síða 3 af 5

Eldri fréttir


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica