24. apríl 2026

Bréf vegna barna sem njóta ekki réttinda sinna til menntunar með fullnægjandi hætti

Umboðsmaður barna sendi bréf til mennta- og barnamálaráðuneytisins í vikunni vegna barna sem ekki fá skólavist við hæfi, eru með skerta stundatöflu eða hefur verið vísað úr skóla.

Á undanförum árum hefur embætti umboðsmanns barna fengið fjölmörg erindi vegna barna sem njóta ekki réttinda sinna til menntunar með fullnægjandi hætti. Af þeim erindum sem borist hafa embættinu má sjá að mörg þessara barna eru með taugaþroskaraskanir, eins og ADHD eða einhverfu, og hafa mörg þurft að bíða árum saman eftir greiningu og viðeigandi stuðningi. 

Embætti umboðsmanns barna hefur margoft vakið athygli á stöðu þeirra barna sem mynda ekki tengsl við skólann og glíma við það sem kallað hefur verið skólaforðun eða skólasóknarvandi. Samkvæmt Barnasáttmálanum ber aðildarríkjum að sjá til þess að börn njóti réttar síns til menntunar án mismununar og þar segir einnig að aðildarríkjum beri að gera ráðstafanir til að stuðla að reglulegri skólasókn og draga úr því að nemendur hverfi frá námi. Þar að auki er skólaskylda í grunnskólum og börn eiga stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu.

Að mati umboðsmanns barna er brýnt að mennta- og barnamálaráðherra eigi frumkvæði að því að greina stöðu barna sem af einhverjum ástæðum sækja ekki grunnskóla. Þá þarf að greina til hvaða aðgerða og úrbóta þurfi að grípa til þess að öll börn eigi raunverulega tækifæri á að sækja skóla þar sem þörfum þeirra er mætt.

Hægt er að lesa allt bréfið hér. Umboðsmaður barna skrifaði grein um rétt barna til menntunar sem birtist á visi.is og í Morgunblaðinu í gær. Hægt er að lesa grein umboðsmanns barna hér.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica