15. apríl 2026

Sveitarstjórnarkosningar og lýðræðisleg þátttaka barna

Umboðsmaður barna hvetur öll sveitarfélög, ungmennaráð sveitarfélaga og grunnskóla landsins til að standa fyrir viðburðum sem efla lýðræðislega þátttöku barna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2026.

Á síðustu árum hefur umboðsmaður barna, í samstarfi við KrakkaRÚV, staðið að verkefninu Krakkakosningar. Krakkakosningar hafa verið mikilvægur lýðræðislegur vettvangur fyrir börn í íslensku samfélagi og er ætlað að efla þau til þátttöku í samræmi við 12. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Kosið verður til sveitarstjórna þann 16. maí næstkomandi. Sveitarstjórnarkosningar eru flóknari í framkvæmd en forseta- og Alþingiskosningar og því vandasamt að halda Krakkakosningar með hefðbundnu sniði. Því hefur umboðsmaður barna sent bréf á öll sveitarfélög, ungmennaráð sveitarfélaga og grunnskóla landsins með hvatningu um að koma á umræðufundi með fulltrúum framboða og nemendum grunnskóla í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Jafnframt hvetur umboðsmaður barna sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga til þess að standa fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins. Með því er hægt að efla þátttöku barna í lýðræðislegri umræðu innan sveitarfélagsins. 

Hægt er að lesa bréf umboðsmanns barna hér.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica