Bréf til byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna útgáfu vottorðs um öryggisúttekt
Umboðsmaður barna sendi bréf á byggingarfulltrúa Reykjavíkur í síðustu viku og óskaði eftir upplýsingum um hvort og þá hvenær gefið hafi verið út vottorð um öryggisúttekt viðbyggingar á Stuðlum.
Þann 18. mars sl. var birt skýrsla Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) vegna eldsvoða sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum 19. október 2024.
Bruninn varð í viðbyggingu þar sem neyðarvistun Stuðla er staðsett en viðbyggingin hefur verið í notkun frá desember 2004. Frá þeim tíma og þar til bruninn átti sér stað í október 2024 var ekkert vottorð um öryggisúttekt gefið út. Í skýrslu HMS kemur fram að notkun viðbyggingarinnar hafi þess vegna verið óheimil þar sem byggingarfulltrúi þarf að hafa gefið út vottorð um öryggisúttekt til þess að heimilt sé að taka mannvirki í notkun. Samkvæmt upplýsingum sem umboðsmaður barna hefur fengið frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var hluti viðbyggingarinnar tekinn aftur í notkun um miðjan apríl 2025.
Umboðsmaður barna óskaði í bréfinu eftir upplýsingum um hvort og þá hvenær gefið hafi verið út vottorð um öryggisúttekt umræddrar viðbyggingar. Þá óskaði umboðsmaður barna eftir upplýsingum um hvort byggingarfulltrúi hefði gripið til einhverra aðgerða vegna óheimilar notkunar húsnæðisins frá því í apríl 2025 með það að markmiði að koma í veg fyrir notkun húsnæðisins hefði vottorð vegna öryggisúttektar ekki verið gefið út. Hægt er að lesa bréfið hér.