Umboðsmaður barna kallar eftir endurskoðun á nauðgunarákvæði 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940
Umboðsmaður barna hefur sent dómsmálaráðherra bréf þar sem kallað er eftir skýrari reglum um samþykki barna skv. 194. gr. hegningarlaga og að réttarvernd barna verði aukin.
Í bréfinu bendir umboðsmaður á að réttaróvissa ríki um hvenær börn geti veitt gilt samþykki samkvæmt 194. gr. hegningarlaga en umboðsmaður hefur áður vakið athygli ráðuneytisins á mikilvægi þess að lágmarksaldur samþykkis verði skilgreindur í lögum.
Tilefni bréfsins er m.a. dómur Hæstaréttar frá 18. mars 2026 sem sýnir misræmi í túlkun dómstóla á því hvort 13 ára barn geti veitt samþykki fyrir kynferðismökum.
Umboðsmaður barna telur að núverandi regluverk tryggi ekki nægilega vernd barna í samræmi við Barnasáttmálann og leggur áherslu á að börn undir 15 ára aldri geti ekki veitt samþykki til kynmaka við fullorðinn einstakling. Þó að umboðsmaður leggi í erindi sínu sérstaka áherslu á endurskoðun 194. gr. hegningrlaga er einnig kallað eftir heildstæðri endurskoðun XXII. kafla laganna og að ráðuneytið upplýsi umboðsmann barna um viðbrögð ráðuneytisins við erindinu fyrir 27. maí nk.
Hægt er að lesa bréfið hér.