Heimsókn í Barnahús
Skrifstofa umboðsmanns barna heimsótti Barnahús í síðustu viku og átti góðan fund með starfsfólki.
Þann 22. apríl sl. fundaði starfsfólk umboðsmanns barna með Paolu Cardenas, forstöðumanni Barnahúss, og Kristínu Birnu Björnsdóttur, sálfræðingi í Barnahúsi. Á fundinum kynntu Paola og Kristín Birna starfsemi og hlutverk Barnahúss, en Barnahús sinnir málefnum barna og unglinga sem grunur leikur á að hafi orðið fyrir eða verið vitni að ofbeldi.
Í kjölfar fundarins fékk starfsfólk umboðsmanns barna skoðunarferð um húsnæði Barnahúss. Umboðsmaður barna þakkar fyrir hlýlegar mótttökur, fræðandi fund og gott samtal. Hægt er að lesa nánar um starfsemi Barnahúss hér.