19. mars 2026

Skýrsla HMS vegna brunans á Stuðlum

Í gær kom út skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) þar sem greint er frá niðurstöðum rannsóknar HMS á brunanum sem varð á Stuðlum 19. október 2024, þar sem 17 ára drengur lést. 

Í skýrslunni kemur fram að alvarlegir annmarkar hafi verið á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti sem hafi haft veruleg áhrif á öryggi barna sem þar voru vistuð og starfsfólks. Þá hafi notkun á húsnæðinu verið óheimil þar sem skilyrði fyrir heimilaðri notkun samkvæmt lögum voru ekki uppfyllt. Annmarkarnir sem taldir eru fram í skýrslunni vörðuðu samspil margra þátta sem er ætlað að tryggja brunavarnir. Rannsókn HMS leiddi í ljós að ef brunavarnir hefðu verið virkar í samræmi við brunahönnun, hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslát. 

Umboðsmaður barna tekur undir það sem fram kemur í skýrslu HMS um að draga þurfi lærdóm af eldsvoðanum á Stuðlum. Einnig er brýnt að stjórnvöld upplýsi um hvernig brunavarnir hafi verið bættar á Stuðlum og hvort öryggi þeirra barna sem nú eru vistuð þar sé tryggt. Umboðsmaður barna hefur sent erindi til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og óskað eftir upplýsingum um hvernig eftirliti slökkviliðsins hafi verið háttað á Stuðlum frá brunanum 19. október 2024.

Hugur embættisins er hjá fjölskyldu og aðstandendum drengsins sem lést í eldsvoðanum.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica