Afhending skýrslu með niðurstöðum barnaþings 2025
Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna, ásamt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, afhentu ráðherrum skýrslu með niðurstöðum barnaþings í dag í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Í skýrslunni má finna helstu niðurstöður barnaþings, en þingið var haldið í nóvember 2025 og heppnaðist einstaklega vel.
Fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna kynntu niðurstöðurnar fyrir ráðherrum. Meðal helstu mála sem fjallað er um í skýrslunni og ráðgjafarhópurinn kynnti sérstaklega fyrir ráðherrum eru skýrara einkunnakerfi í grunnskólum, að íþróttir og tómstundir séu aðgengilegri öllum börnum óháð efnahag, að börn af landsbyggðinni hafi sömu tækifæri og börn búsett á höfuðborgarsvæðinu, að biðlistar eftir heilbrigðisþjónustu séu styttir, að stjórnvöld vinni markvisst að því að draga úr bílaumferð og fræða börn um umferðina, og að fullorðnir hlusti á börn og virði skoðanir þeirra.
Fulltrúar ráðgjafarhópsins ræddu einnig málefni hinsegin barna á Íslandi og komu því á framfæri við ráðherra að efla þurfi fræðslu meðal barna og fullorðinna til þess að draga úr fordómum. Í kjölfar afhendingar skýrslunnar áttu fulltrúar ráðgjafarhópsins gott samtal við ráðherra um málefni barna á Íslandi.

