Vegna ábendinga um öryggi barna á líkamsræktarstöðvum
Umboðsmaður barna hefur sent erindi til allra heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga þar sem athygli er vakin á því að embættinu hafi borist ábendingar um að ekki sé nægilega gætt að öryggi barna á líkamsræktarstöðvum.
Í erindinu er sérstaklega vísað til námskeiða sem ætluð eru nýbökuðum foreldrum, þar sem gert er ráð fyrir að barn fylgi foreldrinu í tímann.
Bent hefur verið á að börn séu í sumum tilvikum látin liggja á svæðum sem eru ekki örugg, til að mynda í nálægð við þung tæki og lóð. Slíkar aðstæður geta skapað verulega slysahættu.
Þá hefur einnig verið bent á að þar sem boðið er upp á gæslu fyrir eldri börn sé ekki ávallt tryggt að starfsmaður sé til staðar til að sinna þeirri gæslu. Í slíkum tilvikum hefur komið fyrir að börn fari út af afmörkuðu svæði og gangi um líkamsræktarsalinn án eftirlits.
Umboðsmaður barna telur mikilvægt að þessi atriði séu skoðuð sérstaklega með það að markmiði að tryggja öryggi barna.