Fréttir (Síða 31)

Fyrirsagnalisti

11. febrúar 2020 : Staða á innleiðingu Barnasáttmálans

Umboðsmaður barna hefur sent bréf til allra ráðuneyta og ríkisstofnana þar sem farið er fram á að gerð sé grein fyrir þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til og sem miða að því að innleiða Barnasáttmálann í starfseminni.

17. janúar 2020 : Norrænt barnaþing í Kaupmannahöfn

Norrænt barnaþing á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar var haldið í Kaupmannahöfn í gær.

6. janúar 2020 : Umboðsmaður barna í aldarfjórðung

Nú um áramótin var aldarfjórðungur liðinn frá því að embætti umboðsmanns barna var komið á fót þann 1. janúar 1995.

Síða 31 af 31

Eldri fréttir (Síða 48)

Fyrirsagnalisti

4. apríl 2014 : Peningagjafir til fermingarbarna

Börn eru ófjárráða upp að 18 ára aldri og er meginreglan því sú að þau ráða ekki yfir fé sínu. Þó er að finna undantekningar frá þessari reglu í 75. gr. lögræðislaga. Börn ráða nefnilega sjálf yfir peningum sem þau hafa unnið sér fyrir eða fengið að gjöf, þ.m.t. peningar sem fermingarbörn fá að gjöf.

2. apríl 2014 : Upptaka eigna í grunnskólum

Börn njóta eignaréttar eins og aðrir. Hvorki í lögum um grunnskóla né reglugerðum er að finna heimildir grunnskóla til að taka eignir af nemendum.

31. mars 2014 : Barn í tveimur leikskólum

Þegar ákveðið er hvort barn eigi að dvelja jafnt hjá báðum foreldrum eiga hagsmunir þess að hafa forgang og vega þyngra en sjónarmið um jafnrétti foreldra.

20. mars 2014 : Skýrsla um forvarnir gegn skaða af ásetningi

Í dag kom út skýrsla um aðgerðir Evrópulanda til að koma í veg fyrir skaða sem börn verða fyrir af ásetningi. Í skýrslunni eru kannaðar þær aðgerðir sem hafa átt sér stað í 25 ríkjum Evrópu til að takast á við þennan vanda. Ísland er eitt af löndunum sem fjallað er um í skýrslunni.

11. mars 2014 : Tengsl feðra og barna – ábyrgð þátttaka og vernd

Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd við Háskóla Íslands (RBF)  stendur fyrir málstofu 27. mars kl. 12 til 14. Yfirskriftin er  Tengsl feðra og barna – ábyrgð þátttaka og verður málstofan haldin í stofu 101 í Lögbergi.

11. mars 2014 : Málþing um jafnrétti, staðalmyndir og leikskólastarf

Rannsóknasetur í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands (RannUng) stendur fyrir málþingi um jafnræétti í leikskólastarfi 27. mars kl. 13 til 16. Yfirskriftin er Að rýna með jafnréttisgleraugum: Leikskólastarf og staðalmyndir!

7. mars 2014 : Úti alla nóttina... næturlíf og neysla - Morgunverðarfundur

Umboðsmaður barna vekur athygli á fræðslufundi Náum áttum samstarfshópsins á Grand hótel Reykjavík miðvikudaginn 12. mars nk. kl. 8:15 - 10:00. Yfirskrift fundarins er "Úti alla nóttina... næturlíf og neysla"

5. mars 2014 : Krakkar velkomnir í dag, öskudag

Krakkar á öllum aldri eru velkomnir á skrifstofu umboðsmanns barna í dag, öskudag, sem aðra daga.

28. febrúar 2014 : Ályktun vegna fyrirhugaðs verkfalls framhaldsskólakennara

Umboðsmaður barna og Heimili og skóli hafa verulegar áhyggjur af nemendum í framhaldsskólum vegna fyrirhugaðs verkfalls framhaldsskólakennara sem boðað hefur verið til þann 17. mars. nk.
Síða 48 af 111

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica