Fréttir (Síða 23)

Fyrirsagnalisti

24. maí 2022 : Um vinnu barna og unglinga

Sumar- og aukastörf ungmenna geta reynst góður undirbúningur fyrir þátttöku þeirra á almennum vinnumarkaði síðar meir. Gæta þarf að því að þau valdi starfinu, það sé í samræmi við aldur þeirra, líkamlega getu og þroska og þau beri ekki of mikla ábyrgð.

5. maí 2022 : Fyrirtaka Íslands hjá Barnaréttarnefndinni

Miðvikudaginn 4. maí 2022 var fyrirtaka Íslands hjá Barnaréttarnefndinni í Genf en hlutverk nefndarinnar er að hafa eftirlit með framkvæmd Barnasáttmálans í aðildarríkjunum.

29. apríl 2022 : Netið, samfélagsmiðlar og börn

Nýjar leiðbeiningar til foreldra, ábyrgðaraðila og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi sem varða netið, samfélagsmiðla og börn. 

28. apríl 2022 : Systurstofnanir í Belgíu heimsóttar

Umboðsmaður barna heimsótti embætti umboðsmanna barna í Belgíu í síðustu viku til að kynna sér starfsemi embættana og réttindagæslu fyrir börn.

27. apríl 2022 : Réttindi barna í stafrænu umhverfi

Nýjar leiðbeiningar fyrir foreldra, ábyrgðaraðila og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi sem varða netið, samfélagsmiðla og börn verða kynntar á málþinginu Réttindi barna í stafrænu umhverfi á Grand hótel föstudaginn 29. apríl milli kl. 08:30 og 10:15. Leiðbeiningarnar eru samstarfsverkefni umboðsmanns barna, Persónuverndar og Fjölmiðlanefndar.

25. apríl 2022 : Afskipti lögreglu af barni

Embættið hefur sent bréf til ríkislögreglustjóra vegna afskipta lögreglu af barni og óskar eftir fundi. 

22. apríl 2022 : Réttindi barna í stafrænu umhverfi

Málþingið "Réttindi barna í stafrænu umhverfi" verður haldið á Grand hótel föstudaginn 29. apríl klukkan 8:30. 

19. apríl 2022 : Vernd barna gegn ofbeldi

Embættið hefur sent bréf til dómsmálaráðherra og dómstólasýslunnar þar sem bent er á nýlegan dóm héraðsdóms og rétt barna til verndar gegn ofbeldi. 

19. apríl 2022 : Framkvæmd skólastarfs í grunnskólum

Embættið hefur óskað eftir upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um það hvenær ráðuneytið hyggst leggja fram skýrslu til Alþingis um framkvæmd skólastarfs í grunnskólum landsins. 

Síða 23 af 36

Eldri fréttir (Síða 23)

Fyrirsagnalisti

27. apríl 2017 : Unglingar og barnagæsla

Umboðsmaður barna fær oft fyrirspurnir um það hvenær unglingar mega byrja að vinna við barnagæslu. Vinnueftirlitið að barnagæsla geti ekki talist starf af léttara taginu og því sé ekki heimilt að ráða yngri en 15 ára til að starfa við barnagæslu. Ekki ætti að fela yngra barni að gæta annars barns nema undir eftirliti fullorðinna.

26. apríl 2017 : Umsögn um frumvarp til laga um íslenskan ríkisborgararétt (ríkisfangsleysi), 373. mál.

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 160/2008, um íslenskan ríkisborgararétt (ríkisfangsleysi), 373. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með tölvupósti dags. 26. apríl 2017.

21. apríl 2017 : Skrifstofan lokuð í dag, 21. apríl

Í dag, föstudaginn 21. apríl, fara fram sumarþrif á skrifstofu umboðsmanns barna og verða starfsmenn því ekki með með hefðbundna viðveru á skrifstofunni í dag.

19. apríl 2017 : Gleðilegt sumar

Á morgun fagna landsmenn sumarkomu og jafnvel þó veðráttan eigi það til að vera ekki mjög sumarleg um þessar mundir má búast við að mörg sveitarfélög verði með hátíðarhöld í tilefni dagsins.

19. apríl 2017 : Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 160/2008, um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga (endurgreiðsla vegna gleraugnakaupa barna), 215. mál.

Velferðarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 160/2008, um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga (endurgreiðsla vegna gleraugnakaupa barna), 215. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með tölvupósti dags. 19. apríl 2017.

6. apríl 2017 : Ungmenni með réttindafræðslu fyrir ráðherra og ráðuneytisstarfsmenn

Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna hefur staðið að réttindafræðslu fyrir ýmsa aðila sem koma að málefnum barna. Hópurinn, sem samanstendur af ungmennum 13 - 17 ára, hefur boðið uppá fræðslu til stjórnmálamanna og -kvenna um störf hópsins og réttindi barna.

1. apríl 2017 : Rödd unga fólksins - morgunverðarfundur Náum áttum

Næsti morgunverðarfundur hópsins Náum áttum verður miðvikudaginn 5. apríl næstkomandi. Umfjöllunarefni fundarins er að þessu sinni "Rödd unga fólksins: Er hlustað á skoðanir ungmenna?"

29. mars 2017 : Könnun um ungmennaráð sveitarfélaga

Umboðsmaður barna hefur óskað eftir upplýsingum frá öllum sveitarfélögum um stöðu ungmennaráða.

21. mars 2017 : Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl.

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 106. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með tölvupósti dags. 16. mars 2017.
Síða 23 af 111

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica