Fréttir: nóvember 2011 (Síða 2)

Fyrirsagnalisti

18. nóvember 2011 : Tillaga til þingsályktunar um Íslandssögukennslu í framhaldsskólum (aukið vægi í námskrám), 89. mál.

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns um tillögu til þingsályktunar um Íslandssögukennslu í framhaldsskólum (aukið vægi í námskrám), 89. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna í bréfi dags. 18. nóvember 2011.

16. nóvember 2011 : Kynning á niðurstöðum barnaréttarnefndar SÞ á stöðu Íslands

Niðurstöður barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna vegna framkvæmdar Íslands á barnasáttmála SÞ verða kynntar á morgunverðarfundi á morgun, fimmtudag 17. nóvember. Fundurinn fer fram á Kornhlöðulofti Lækjarbrekku og mun standa milli klukkan 8.45 og 10.30. Kynningin er öllum opin. Gestir eru hvattir til að mæta og koma upplýsingum um fundinn á framfæri við alla áhugasama.

16. nóvember 2011 : Stjórnlög unga fólksins vekja athygli út fyrir landsteinana

Stjórnlög unga fólksins verða í forgrunni á ráðstefnu Evrópuráðsins sem fram fer á sunnudag og mánudag. Þar verða samankomnir ráðherrar Evrópuráðsins og ætla þeir að ræða hvernig byggja megi upp barnvænni  Evrópu. Stjórnlög unga fólksins voru samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, umboðsmanns barna og UNICEF á Íslandi. Markmiðið var að láta raddir barna og ungmenna heyrast við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

15. nóvember 2011 : Hegðunarvandi - þroskavandi? - Málstofa um barnavernd

Málstofa um barnavernd verður haldin hjá Barnaverndarstofu mánudaginn 28. nóvember kl. 12:15 - 13:15. Yfirskriftin er ,,Hegðunarvandi - þroskavandi?" og fyrirlesari er Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur, forstöðumaður Stuðla.

15. nóvember 2011 : Streita og kvíði barna - Morgunverðarfundur

Náum áttum hópurinn stendur fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 23. nóvember 2011 kl. 8:15 - 10 á Grand hótel. Umræðuefnið er streita og kvíði barna, einkenni og úrræði.

11. nóvember 2011 : Málefni barna sem hafa skertan málþroska vegna heyrnarleysis eða heyrnarskerðingar - Bréf

Umboðsmaður barna hefur sent menntamálaráðherra bréf þar sem hann vekur athygli á mikilvægi þess að börn sem hafa skertan málþroska vegna heyrnarleysis eða heyrnarskerðingar og foreldrar þeirra hafi greiðan aðgang að ráðgjöf og þjónustu táknmálsfræðinga og annarra sérfræðinga á þessu sviði.

10. nóvember 2011 : Lakari réttur framhaldsskólanema? - Bréf

Nú hefur komið í ljós að með nýju regluverki ætla stjórnvöld ekki að tryggja nemendum framhaldsskóla sama eða betri rétt en eldri reglur kváðu á um varðandi rétt til aðstoðar umsjónarkennara, sálfræðinga og félagsráðunauts.

9. nóvember 2011 : Samþykki barna til brottnáms líffæra eða lífrænna efna úr eigin líkama - Bréf

Umboðsmaður hefur í nokkurn tíma haft áhyggjur af réttarstöðu barna sem mögulega þurfa og/eða vilja gefa úr sér líffæri eða lífræn efni, svo sem beinmerg. Samkvæmt lögum er börnum óheimilt að gefa samþykki til brottnáms líffæris eða lífrænna efni, undir hvaða kringumstæðum sem er. Þó er ljóst að það tíðkast að einhverju leyti í framkvæmd að börn gefi líffæri eða lífræn efni.

8. nóvember 2011 : Á degi gegn einelti - Verum vinir

Eftir að hafa fengið ábendingar frá börnum og unglingum um að einelti sé þungt og fráhrindandi hugtak hefur umboðsmaður barna ákveðið að nálgast þetta vandamál með því að leggja áherslu á vináttu og samkennd.
Síða 2 af 3

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica