8. nóvember 2011

Á degi gegn einelti - Verum vinir

Eftir að hafa fengið ábendingar frá börnum og unglingum um að einelti sé þungt og fráhrindandi hugtak hefur umboðsmaður barna ákveðið að nálgast þetta vandamál með því að leggja áherslu á vináttu og samkennd.

Börn eiga að njóta þess að vera börn og barnæskan á að vera áhyggjulaus tími. Það eru þó allt of margir sem upplifa þá tíma ekki jákvæða. Fjölmiðlar hafa verið ötulir við að segja frá tilvikum þar sem einelti hefur varanleg áhrif á framtíð þeirra barna sem fyrir því verða.

Eftir að hafa fengið ábendingar frá börnum og unglingum um að einelti sé þungt og fráhrindandi hugtak hefur umboðsmaður barna ákveðið að nálgast þetta vandamál með því að leggja áherslu á vináttu og samkennd. Einelti getur bæði verið orsök og afleiðing ýmissa vandamála en með því að bæta brag skólans sem og samfélagsins í heild og leggja áherslu á vináttu og kærleika fyrir náunganum er hægt að vinna gegn einelti og vinaleysi og bæta líðan almennt.

Undanfarnar vikur og mánuði hefur umboðsmaður barna farið í grunnskóla landsins og vakið athygli á mikilvægi vináttu og samkenndar. Virðing fyrir mannhelgi og samlíðan eru hlutir sem allir ættu að tileinka sér. Ábyrgð foreldra skiptir vissulega miklu máli þegar kemur að því að kenna börnum þessar dyggðir en það er einnig mikilvægt að samfélagið í heild sinni leggi sitt af mörkum til að þjálfa jákvæð samskipti og að fullorðnir veri börnum góðar fyrirmyndir. Það er einnig mikilvægt að brýna fyrir börnum að þau gæti þess að taka ekki þátt í því að koma illa fram við aðra og að þau láti vita þegar eitthvað er gert eða sagt sem skaðar eða særir einhvern.

Það er auðvitað aldrei hægt að gera þá kröfu um að allir verði bestu vinir en bara það eitt að geta sýnt það að við berum virðingu fyrir hvort öðru getur haft mikil áhrif. Að heilsa einhverjum sem er oft einn getur verið nóg til að bjarga deginum fyrir viðkomandi.

Með því að koma fram við aðra af virðingu og samkennd og umfram allt að tala ekki niðrandi um annað fólk verðum við að betri fyrirmyndum fyrir börnin okkar. Þannig getum við stuðlað að góðu og heilbrigðu samfélagi.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica