Fréttir: apríl 2008

Fyrirsagnalisti

30. apríl 2008 : Talnaefni um börn í leikskólum

Hagstofa Íslands hefur sent frá sér tölur um nemendur og starfsfólk í leikskólum í desember 2007. Börn í leikskólum hafa aldrei verið fleiri. Viðvera barna lengist stöðugt og viðvera drengja er lengri en stúlkna.

29. apríl 2008 : Skóli og lýðheilsa - Ráðstefna

Lýðheilsustöð stendur fyrir ráðstefnu um skóla og lýðheilsu á Hilton Reykjavík Nordica hinn 9. maí kl. 8:00-16:30.

25. apríl 2008 : Ný bók um einhverfu

Út er komin Bókin um einhverfu. Spurt og svarað. Útgefendur eru Græna húsið, útgáfan okkar og Umsjónarfélag einhverfra. Bókin er skrifuð með það í huga að vera hjálpartæki fyrir foreldra, vini og vandamenn, kennara og alla aðra sem telja sig þurfa að fá infalda fræðslu um einhverfu og stuðning af almennum upplýsingum á persónulegum grunni.

23. apríl 2008 : Reykjavíkurráð ungmenna fundar með borgarstjórn

Fulltrúar úr Reykjavíkurráði ungmenna lögðu í gær, 22. apríl 2008, fram tillögur sínar á árlegum fundi með borgarstjórn. Tillögur ungmennanna voru m.a: að reisa styttu af Vigdísi Finnbogadóttur, bætt tungumálakennsla fyrir innflytjendur, betri aðstaða við Hljómskálagarð, úrbætur vegna manneklu í leikskólum, fleiri „leyfisveggi" fyrir veggjakrot/list og síðast en ekki síst aukið vægi ungmennaráða.

23. apríl 2008 : Málstofa um barnavernd 28. apríl

Málstofa um barnavernd verður haldin í Barnaverndarstofu, Höfðaborg, mánudaginn 28. apríl 2008 kl. 12:15 - 13:15. Þrír nemendur í starfsréttindanámi í félagsráðgjöf munu kynna rannsóknir sem þeir hafa verið að vinna í starfsþjálfun.

17. apríl 2008 : Framkvæmdaáætlun í barnavernd lögð fram í fyrsta sinn

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisins í barnavernd.

14. apríl 2008 : Hljóðvist í kennsluhúsnæði - þingsályktunartillaga

Lögð hefur verið fyrir Alþingi þingsályktunartillaga um bætta hljóðvist og aðgerðir til að draga úr erilshávaða í kennsluhúsnæði. Umboðsmaður barna fagnar framkominni þingsályktunartillögu og hvetur til aðgerða á þessu sviði

11. apríl 2008 : Ávinningur forvarna - Morgunverðarfundur

Morgunverðarfundur Náum áttum verður á Grand hótel Reykjavík, miðvikudaginn 16. apríl nk. kl. 8:15 til 10:00. Þema fundarins er Ávinningur forvarna - hvað kostar að gera ekki neitt?

9. apríl 2008 : Forvarnadagur framhaldsskólanna í dag

Í dag, 9. apríl, er í fyrsta sinn staðið fyrir sameiginlegum forvarnadegi framhaldsskólanna. Þetta er gert að frumkvæði forvarnanefndar SÍF (Sambands íslenskra framhaldsskólanema).
Síða 1 af 2

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica