Fréttir: apríl 2007

Fyrirsagnalisti

25. apríl 2007 : Fjöldi barna í leikskólum 2006

Hagstofa Íslands hefur gefið út nýjar tölur um fjölda barna í leikskólum í árslok 2006. Í frétt á vefsíðu Hagstofunnar segir að börn í leikskólum hafi aldrei verið fleiri og dvalartími barna í leikskólum lengist stöðugt.

24. apríl 2007 : SAMAN hópurinn hlýtur lýðheilsuverðlaunin 2007

Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 voru veitt við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. Handhafi verðlaunanna í ár er SAMAN hópurinn og veitti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hópnum verðlaunin fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra.

23. apríl 2007 : Til hamingju Ástráður!

Ástráður, forvarnastarf læknanema, hlaut nýlega Íslensku forvarnaverðlaunin 2007. Verðlaunin eru veitt af Forvarnarhúsi Sjóvár. Ástráður þykir hafa unnið mikilvægt og vandað sjálfboðastarf til að efla kynheilbrigði ungs fólks og er öðrum háskólanemum góð fyrirmynd og hvatning.

23. apríl 2007 : Efling foreldrahæfni - Stefna Evrópuráðsins

Nýlega samþykkti ráðherranefnd Evrópuráðsins tilmæli til aðildarríkjanna um stefnu til eflingar foreldrahæfni (2006)19. Jafnframt fylgja tvö fylgiskjöl um foreldrahæfni í Evrópu samtímans: "Mikilvæg boð til foreldra: ölumst upp saman" og "Leiðbeiningar handa fagfólki".

17. apríl 2007 : Unglingar vilja skýr mörk - sænsk könnun

Unglingar vilja að foreldrar þeirra setji þeim mörk og vilja ekki að foreldrar kaupi fyrir þá áfengi eða bjóði þeim upp á bjór og vín. Þetta kemur fram í könnun sem umboðsmaður barna í Svíþjóð gerði meðal ráðgjafarbekkja sinna.

17. apríl 2007 : Einmana börn - Fræðslufundur

Samstarfshópurinn NÁUM ÁTTUM heldur fræðslufund um börn og einmanaleika á Grand hóel þriðjudaginn 24. apríl n.k. kl. 8:15 - 10:00.

16. apríl 2007 : Nám að loknum grunnskóla 2007

Menntamálaráðuneytið hefur gefið út fræðsluritið Nám að loknum grunnskóla 2007. Í bæklingnum er kynnt það nám sem í boði er í íslenskum framhaldsskólum.

13. apríl 2007 : Olnbogabörn skólasamfélagsins - eru þau til enn?

FÍUM, Félags íslenskra uppeldis- og meðferðarstofnana fyrir börn og unglinga, stendur fyrir málþingi í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni, miðvikudaginn 18. apríl nk. frá kl. 8:30 til kl. 15:30.

12. apríl 2007 : Tökum kúrsinn - Ráðstefna um málefni innflytjenda

Ráðstefna um málefni innflytjenda verður haldin mánudaginn 16. apríl kl. 13:30 til kl. 16:00 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. 
Síða 1 af 2

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica