24. apríl 2007

SAMAN hópurinn hlýtur lýðheilsuverðlaunin 2007

Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 voru veitt við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. Handhafi verðlaunanna í ár er SAMAN hópurinn og veitti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hópnum verðlaunin fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra.

Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 voru veitt við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun.

Handhafi verðlaunanna í ár er SAMAN hópurinn og veitti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hópnum verðlaunin fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra.

Í frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins 24.04.2007 segir:

Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru veitt í samræmi við áherslur sem heilbrigðis-og tryggingamála-ráðherra hefur kynnt á sviði forvarna og heilsueflingar. Auglýst var eftir tilnefningum til verð-launanna og bárust á milli 40 og 50 tilnefningar frá fyrirtækjum, einstaklingum og stofnunum. Nefnd á vegum heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytis var ráðherra til aðstoðar við mat á tilnefningum.

SAMAN hópurinn er samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana sem láta sig varða velferð barna. Markmið hópsins er að styðja og styrkja foreldra, einkum í tengslum við tímabil eða sérstaka atburði þegar talið er líklegt að aukning verði á neyslu vímuefna meðal ungmenna. SAMAN hópurinn varð til um áramótin 1999 – 2000 og hefur starfað óslitið síðan. Hópurinn hefur staðið að gerð og útgáfu auglýsinga, fræðslu- og kynningarefnis til dæmis þegar 10. bekkingar útskrifast úr grunnskóla, á haustin þegar útivistartími barna styttist, á 17. júní og um verslunarmannahelgina.

SAMAN hópurinn er gott dæmi um öflugt tengslanet talsmanna um lýðheilsu en í hópnum sameina krafta sína 22 sveitarfélög, opinberar stofnanir og frjáls félagasamtök. Aðilar að SAMAN hópnum eru:  Akureyrarbær, Seltjarnarnesbær, Garðabær, Reykjavíkurborg, Hafnar-fjarðarbær,  Mosfellsbær, Sveitarfélagið Álftanes, Kópavogur, Barnaheill, Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Heilsugæslan í Reykjavík, Heimili og skóli, IOGT, Lögreglan á höfuðborgar-svæðinu, Ný leið ráðgjöf, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjórinn, SAMFOK, Umboðsmaður barna, Vímulaus æska, Þjóðkirkjan og loks Lýðheilsustöð.

Handhafi Íslensku lýðheilsuverðlaunanna fær annars vegar veglegan verðlaunagrip, styttu úr gleri á grágrýtisstöpli eftir Ólöfu Davíðsdóttur í Brákarey, en hins vegar 500 þúsund króna fjárupphæð.

Nánari upplýsingar um SAMAN hópinn á vefsíðunni www.samanhopurinn.is


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica