Vanlíðan
Hvað á ég að gera ef mér líður illa að vera hjá pabba?
Spurningin:
Mér líður illa að vera hjá pabba. Ég á mjög erfitt með að sofa og er mjög kvíðinn.
Svar frá umboðsmanni barna:
Hæ og takk fyrir að hafa samband við umboðsmann barna. Það er leitt að heyra að þér líði illa hjá pabba þínum, að þú eigir erfitt með að sofa og sért kvíðinn. Það er mikilvægt að þú fáir hjálp og foreldrar þínir eiga að styðja þig og það skiptir líka miklu máli að þú sofir vel af því það hefur áhrif á hvernig þér líður.
Ef þú treystir þér til þess að tala um þetta við pabba þinn þá gæti það hjálpað, það er mikilvægt að hann viti af því hvernig þér líður og þá geti þið kannski fundið leið til að þér líði betur hjá honum. Kannski er hægt að gera einhverjar breytingar sem hjálpa þér að líða betur.
Það getur verið erfitt að ræða svona hluti og kannski finnst þér auðveldara að tala um þetta við einhvern annan fullorðinn sem þú treystir til dæmis aðra ættingja, kennara, námsráðgjafa eða skólahjúkrunarfræðing sem geta þá veitt þér stuðning og kannski hjálpað þér að tala við pabba þinn um hvernig þér líður.
Stundum þurfa börn að fá hjálp frá sérfræðingum þegar þau eru með mikinn kvíða og geta ekki sofið. Það er mikilvægt að foreldrar þínir viti hvernig þér líður til þess að þau geti fengið hjálp fyrir þig ef það þarf. Það eru margir sem finna fyrir kvíða einhvern tímann og það eru til mörg góð ráð sem geta hjálpað t.d. regluleg hreyfing, öndunaræfingar og fleira.
Það gæti líka verið gott fyrir þig að vita að þú getur haft samband við Bergið headspace sem veitir ókeypis ráðgjöf og stuðning fyrir börn og ungt fólk á aldrinum 12-25 ára.
Það er líka hægt að hafa samband við hjálparsíma með því að hringja í númerið 1717. Þar er hægt að fá stuðning og upplýsingar þegar manni líður illa.
Gangi þér vel