Tyggjó í skólanum
Afhverju má ekki vera með tyggjó í skólanum?
Spurning til umboðsmanns barna:
Afhverju má ekki vera með tyggjó í skólanum?
Svar frá umboðsmanni barna:
Hæhæ og takk fyrir að senda póst til umboðsmanns barna.
Grunnskólar á Íslandi setja sínar eigin skólareglur og í þeim kemur oft fram að bannað sé að vera með tyggjó í skólanum. Skólareglur eiga að tryggja vinnufrið, öryggi og góða umgengni í skólanum. Ef þú ert ósátt við tyggjóbannið í skólanum getur þú rætt við kennarann þinn og spurt hvers vegna tyggjó sé bannað í skólanum. Þú getur einnig rætt við nemendaráð í þínum skóla og komið sjónarmiðum þínum á framfæri.
Kær kveðja, umboðsmaður barna