Þær sem eiga að kallast vinkonur mínar segja að ég sé fífl
stelpa
11
Þær sem eiga að kallast vinkonur mínar segja að ég sé fífl, ógeð og að ég sé döö. Hvað á ég að gera?
Komdu sæl
Þú segist vera 11 ára. Á þessum árum getur verið mjög erfitt að halda vinskap, sérstaklega hjá stelpum og “vinkonu-vandamálin” geta oft orðið mjög snúin. Það er erfitt hlutskipti að vera útundan og spyrja sig af hverju vinkonurnar vilji ekki vera með manni. Flestir takast þó á við erfiðleikana og sigrast á þeim. Gott er líka að hafa í huga að vináttan getur haldist, þó að átök og togstreita komi stundum upp í vinkonusambandinu. Með vináttu kynnist maður því að verða stundum fyrir vonbrigðum en geta jafnað sig eftir vonbrigði og misskilning og sæst aftur.
Kannski væri sniðugt að fá þessa vinkonur þínar til að setjast niður með þér og ræða málin, en áður en þú gerir það skaltu ráðfæra þig við einhvern sem þú treystir. Það getur t.d. verið einhver í fjölskyldunni þinni eða bara hver sem er, sem þér finnst gott að tala við. Ef þér líður mjög illa yfir þessu er líka mikilvægt að þú getir talað við einhvern nákominn til að fá huggun og skilning.
Þú getur líka leitað til ýmissa annarra aðila eftir stuðningi, t.d. umsjónarkennara, námsráðgjafa eða skólahjúkrunarfræðings. Þá má benda þér á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, sem er gjaldfrjáls sími og er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð i ýmsum málum. Þú þarft ekki að segja til nafns ef þú hringir í hjálparsímann.
Þú skalt líka hafa í huga að það eru til ýmsar leiðir til að eignast nýja vini og vinkonur. Þá skiptir miklu máli að reyna að vera jákvæð. Oft er auðveldara að kynnast fólki á öðrum vettvangi en í skólanum. Athugaðu hvað er í gangi í þínu bæjarfélagi / hverfi. Þú gætir t.d. kannað hvaða greinar íþróttafélögin bjóða upp á. Svo gæti félagsmiðstöðin, skátarnir, Rauði krossinn eða kirkjan líka verið með unglingastarf, námskeið eða klúbb sem þú gætir haft áhuga á að reyna. Ef þú hefur eitthvert afmarkað áhugamál gætir þú auglýst í skólanum þínum, bókasafninu eða félagsmiðstöðinni eftir einhverjum með sama áhugamál. Þá væri hægt að hittast og ræða um áhugamálið. Einnig gætir þú prófað að skrifa pennavini. Námsráðgjafinn í skólanum þínum getur örugglega hjálpað þér með að finna aðrar leiðir sem henta þér.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna