Skipting í bekki í skóla
Eiga börn rétt á að vera með vinum sínum í bekk?
Spurningin til umboðsmanns barna:
Hef ég ekki rétt á að vera með vinkonum mínum í bekk?
Svar umboðsmanns barna:
Hæ, takk fyrir að hafa samband við umboðsmann barna. Þetta er mjög góð spurning hjá þér. Þú átt rétt á að segja þína skoðun og starfsfólk skólans á að veita þér tækifæri til þess að segja hvað þér finnst og hlusta á þig. Stundum er þó ekki hægt að verða við óskum nemenda um til dæmis með hverjum þau eru í bekk, það getur verið af því það er verið að taka ákvörðun sem þau telja að sé best fyrir allan hópinn. Þau gætu til dæmis verið að reyna að passa upp á jafnvægi í bekkjum eða námsumhverfi. Stundum eru teknar ákvarðanir um að breyta bekkjum af og til svo nemendur kynnist fleiri krökkum og læri að vinna með fleirum.
Þú getur alltaf haft samband við okkur aftur ef þú hefur fleiri spurningar.