Kynferðislegur lágmarksaldur
Komdu sæl
Þú ert líklega að tala um það sem stundum er kallað kynferðislegur lágmarksaldur. Það segir reyndar hvergi beint í lögum að unglingar þurfi að hafa náð ákveðnum aldri til að mega stunda kynlíf. Hins vegar er ákvæði í almennum hegningarlögum, þar sem segir að það sé refsivert að stunda kynlíf með einstaklingi sem er yngri en [15]* ára. Af þessu hefur verið leitt, að kynferðislegur lágmarksaldur sé [15]* ára hér á landi. Þetta lagaákvæði miðar fyrst og fremst að því að vernda börn og unglinga fyrir misnotkun sér eldra fólks. Ef þetta lagaákvæði er brotið getur refsing orðið allt að [16]* ára fangelsi. Í sama lagaákvæði segir einnig að hver sem með blekkingum, gjöfum eða á annan hátt tæli ungmenni yngra en 18 ára til samræðis eða annarra kynferðismaka skuli sæta refsingu, sem getur orðið allt að 4 ára fangelsi. Þessu ákvæði er einnig ætlað að vernda unglinga fyrir misnotkun eldra og þroskaðra fólks.
Vilji löggjafans er fyrst og fremst að vernda börn gegn kynferðislegri misnotkun þeirra sem eldri eru, og vilja notfæra sér reynsluleysi barnanna í þessum efnum. Ef krakkar sem eru undir 14 ára aldri eru byrjuð að stunda kynlíf eru yfirvöld ekkert að skipta sér að einkamálum þeirra – þ.e.a.s. svo framarlega sem krakkarnir eru jafningjar og virði rétt hvors annars til að ráða yfir eigin líkama.
Það munar hins vegar yfirleitt mjög miklu á reynslu og þroska 14 og t.d. 18 ára einstaklinga og í raun myndi mörgum eflaust þykja skrýtið að 18 ára einstaklingur eða eldri sýni 14 ára barni kynferðislegan áhuga.
Svona eru lögin, en það er síðan annað mál, að enginn ætti að byrja að stunda kynlíf með öðrum fyrr en hann er tilbúinn til þess sjálfur og gerir sér grein fyrir afleiðingum þess andlega og líkamlega. Í þessum málum verður hver og einn að taka ábyrgð á sjálfum sér og lesa sér til um getnaðarvarnir og kynsjúkdóma.
Vert er að benda á frábæra síðu félags læknanema um forvarnarstarf, www.astradur.is. Þú skalt endilega kíkja á þá síðu. Svo getur þú spurt “Ástráð” um hvað sem er sem við kemur kynlífi, getnaðarvörnum og kynsjúkdómum.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna