Er ekki komin með nein brjóst
Stúlka
Hér eru svipaðar spurningar sem við höfum fengið vegna áhyggja af brjóstastærð. Við svörum þeim því öllum í einu.
1) Ég er ekki með nein brjóst, og allar vinkonur mínar eru komnar með stór brjóst og við erum 7 bekk að fara í 8. En ég er byrjuð á kynþroska en ég er ekki með nein brjóst! Hvað á ég að gera?
2) Hvenær veit ég að ég sé að fara að fá brjóst ég er í 8.bekk að fara í 9 og er ekki komin með neitt ekki einu sinni verki eða neitt?
3) Hæ hæ ég er með sma áhyggjur ég er ekki með nein brjóst og langar alveg geðveikt í brjóst, get ég gert einhverjar æfingar til að fá brjóst?
Hæ.
Það er mjög misjafnt hvenær brjóst fara að stækka og líka hvenær þau hætta að stækka. Brjóst geta verið allt að 4 – 5 ár að þroskast þannig að það er því algjör óþarfi að hafa áhyggjur af þessu núna því það getur margt gerst á næstu árum og jafnvel mánuðum. Það er líka mismunandi hvenær stelpur verða kynþroska. Sumar verða kynþroska snemma en aðrar seinna, það er alveg eðlilegt. Þú getur lesið meira um kynþroska stúlkna hér á vefsíðunni Heilsuvera.
Það er lítið hægt að gera til að hraða kynþroskanum eða breyta líkamsbyggingunni. Svo skiptir holdafar líka máli. Ef þú ert grönn er alveg eðlilegt að þú hafir lítil brjóst. Því er best að hugsa vel um sig og reyna að vera ánægður með líkama sinn eins og hann er.
Hér eru nokkrar gagnlegar síður sem við viljum benda þér á:
Á vefsíðunni Heilsuvera er heilmikill fróðleikur um allt sem viðkemur líkamlegu og andlegu heilbrigði. Þar er sérkafli um kynheilbrigði og þar undir er kafli um kynþroska þar sem má lesa ýmislegt um kynþroska hjá stelpum. Neðst á síðunni er netspjall þar sem hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðing.
Svo getur þú að sjálfsögðu talað um þetta við foreldra þína, aðra fullorðna sem þú treystir, hjúkrunarfræðinginn í skólanum eða á heilsugæslunni.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna