Áhyggjur af brjóstastærð
Stúlka
13
Umboðsmaður barna fékk eftirfarandi erindi í gegnum þessa síðu. Ekkert netfang fylgdi og því er svarið við þessu erindi birt hér. Spurningin hefur verið stytt.
Hæ, Ég er ekki með nein brjóst og liður ægilega illa því það eru allar vinkonur mínar komnar með brjóst og svo loksins byrjaði ég að fá verki og eg fann fyrir kúlum og var mjög ánægð að eitthvað var að koma en svo hverfur það og engir verkir engar kúlur eða neitt. Ég er búin að google helling en engin getur svarað mér. Ég er búin að tala við mömmu en hún segir bara að þetta á eftir að koma, ég vona að þú getir sagt mér eitthvað.
Hæ.
Það er mjög misjafnt hvenær brjóst byrja að stækka og hvenær þau hætta að stækka. Þau gera verið allt að 5 ár að þroskast þannig að það getur margt gerst á næstu árum eða jafnvel mánuðum. Svo er líka mjög mismunandi hvenær stelpur verða kynþroska, sumar verða snemma kynþroska en aðrar seinna og það er alveg eðlilegt. Þú getur lesið meira um kynþroska stúlkna hér á vefsíðunni Heilsuvera.
Það er rétt hjá mömmu þinni, þetta kemur allt þó svo að það sé auðvitað erfitt að bíða. Það er hins vegar mikilvægast að vera heilbrigður og reyna að vera sátt við líkamann eins og hann er, það er ekkert hægt að gera til að flýta fyrir þessu.
Við viljum benda þér á nokkrar síður sem gæti verið gagnlegt fyrir þig að kíkja á.
- Á vefsíðunni Heilsuvera er heilmikill fróðleikur um allt sem viðkemur líkamlegu og andlegu heilbrigði. Þar er sérkafli um kynheilbrigði og þar undir er kafli um kynþroska þar sem má lesa ýmislegt um kynþroska hjá stelpum. Neðst á síðunni er netspjall þar sem hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðing.
- Á vefsíðu Áttavitans er bæði hægt að senda inn fyrirspurnir um allt sem helst brennir á ungu fólki og lesa svör við spurningum sem þar hafa borist.
- Svo er hér hægt að sjá fræðslumyndina „Alls kyns um kynþroskann“ sem er aðgengileg á vefsíðu Menntamálastofnunar.
Vonandi svarar þetta þér einhverju en ef þú hefur miklar áhyggjur þá gæti verið gagnlegt fyrir þig að ræða um það við einhvern fullorðinn sem þú treystir. Það gætu t.d. verið foreldrar þínir, hjúkrunarfræðingur í skólanum eða heilsugæslunni eða aðrir fullorðnir sem þú treystir vel.
Gangi þér vel.