Fréttir
Eldri fréttir: 2008 (Síða 13)
Fyrirsagnalisti
Málstofur RBF á vorönn
Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd (RBF) og félagsráðgjafarskorar Háskóla Íslands kynna eftirtaldar málstofur sem verða á vorönn 2008. Þema vorsins er: Börn og breytingar í fjölskyldum - forvarnir
Morgunverðarfundur NÁUM ÁTTUM á Akureyri
Samstarfshópurinn NÁUM ÁTTUM heldur fræðslufund um forvarnir í sveitarfélögum á Hótel KEA Akureyri mánudaginn 4. febrúar n.k. kl. 9:00 til 10:45.
Frumvarp til laga um grunnskóla, heildarlög, 285. mál
Menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um grunnskóla, heildarlög, 285. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 24. janúar 2008.
Frumvarp til laga til leikskólalaga, heildarlög, 287. mál.
Menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga til leikskólalaga, 287. mál, heildarlög. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags.22. janúar 2008.
Frumvarp til laga um framhaldsskóla, heildarlög, 286 mál.
Menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um framhaldsskóla, 286 mál, heildarlög. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 21. janúar 2008
Systkini barna með sérþarfir - Málþing Sjónarhóls
Málþing Sjónarhóls verður haldið þann 7. febrúar n.k. og verður efni málþingsins að þessu sinni “Systkini barna með sérþarfir”. Málþingið er haldið í Gullhömrum, Grafarholti frá kl. 8.30 til 12.30. Á málþinginu er fjallað um upplifun og aðstæður systkina barna með sérþarfir. Erindi flytja systkini og aðrir aðstandendur barna með sérþarfir auk fagfólks.
Samstarf í barnavernd - Málstofa BVS
Næsta málstofa um barnavernd verður haldin mánudaginn 28. janúar kl. 12.15 - 13.15 í Barnaverndarstofu í Höfðaborg. Yfirskriftin er „Samstarf í barnavernd" og fyrirlesari er Anni G. Haugen, félagsráðgjafi og lektor við félagsráðgjafarskor Háskóla Íslands
Þingsályktunartillaga um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru sem beint er að börnum, 47. mál.
Heilbrigðisnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um þingsályktunartillögu um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru sem beint er að börnum, 47. mál. Sameiginlega umsögn sína veittu umboðsmaður barna og talsmaður neytenda með bréfi dags. 12. janúar 2008.
Frumvarp til laga um meðferð sakamála, heildarlög, 233 mál.
Allsherjarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um meðferð sakamála, 233 mál, heildarlög. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 10. janúar 2008.
Síða 13 af 14