Fréttir
Eldri fréttir: 2011 (Síða 14)
Fyrirsagnalisti
Tillaga til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára, 334. mál
Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um tillögu til þingsályktunar um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára, 334. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 16. febrúar 2011.
Áhrif hagræðingar á velferð barna - Morgunverðarfundur
Umboðsmaður barna vill vekja athygli á morgunverðarfundi Náum áttum hópsins sem haldinn verður miðvikudaginn 16. febrúar 2011 kl. 8:15 - 10 á Grand Hótel. Yfirskrift fundarins er „Hver er þeirra gæfu smiður? - áhrif hagræðingar á velferð barna.
Heimsdagur barna
Heimsdagur barna verður haldinn hátíðlegur í Reykjavík laugardaginn 12. febrúar kl. 13 - 17. Í Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs býðst börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í hinum ýmsu listasmiðjum.
Jöfn dvöl barna hjá foreldrum
Þróunin hér á landi virðist vera sú að fleiri og fleiri foreldrar velja svokallaða jafna umgengni, þ.e. að börn þeirra dvelji hjá þeim til skiptis viku og viku. Oft er spurt hvernig þetta fyrirkomulag hentar börnum. Því er erfitt að svara með einföldum hætti enda eru aðstæður barna mjög mismunandi.
Áfengisauglýsingar íþróttafélaga
Áfengisauglýsingar eiga aldrei rétt á sér á viðburðum sem börn sækja. Hagsmunir barna og unglinga af því að njóta verndar gegn áfengisauglýsingum eiga alltaf að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir íþróttafélaga. Vegna ábendinga um áfengisauglýsingar íþróttafélaga sendi umboðsmaður bréf til ÍSÍ. Hér er innihald þess birt sem og svarbréf ÍSÍ.
Skýrsla umboðsmanns barna til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna
Umboðsmaður barna hefur sent skýrslu til Barnaréttarnefndarinnar um það sem að hans mati mætti betur fara við framkvæmd Barnasáttmálans hér á landi.
Dagur leikskólans
Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í fjórða sinn 6. febrúar. Þar sem dagurinn er á sunnudegi munu leikskólar landsins halda daginn hátíðlegan föstudaginn 4. febrúar.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2011
Mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið og SAFT standa fyrir ráðstefnu um Internetið á alþjóðlega netöryggisdaginn, þann 8. febrúar 2011 á Hilton hóteli, Nordica.
Átta ára drengur óskar eftir íbúð - Málþing Barnaheilla
Barnaheill - Save the Children á Íslandi mun standa fyrir málþingi um börn sem búa við heimilisofbeldi fimmtudaginn 17. febrúar nk. á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 9 til kl. 13. Yfirskrift málþingsins er Átta ára drengur óskar eftir íbúð.
Síða 14 af 16