Fréttir
Eldri fréttir: 2011 (Síða 13)
Fyrirsagnalisti
Sýnileiki barnsins í barnaverndarmálum fyrir dómstólum á Íslandi - Málstofa um barnavernd
Barnaverndarstofa, Barnavernd Reykjavíkur, félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands (HÍ) og faghópuur félagsráðgjafa í barnavernd standa fyrir málstofu um barnavernd í hádeginu mánudaginn 7. mars. Yfirskriftin er Sýnileiki barnsins í barnaverndarmálum fyrir dómstólum á Íslandi 2002-2009
Niðurskurður sem bitnar á börnum
Umboðsmaður barna sendi í gær, 2. mars 2011, bréf til allra sveitarfélaga þar sem hann lýsir áhyggjum sínum af niðurskurði og minnir á skyldu þeirra til að setja hagsmuni barna ofar hagsmunum annarra í samfélaginu.
Opinber umfjöllun um afbrot barna - Málþing
Umboðsmaður barna og Lagadeild Háskólans í Reykjavík bjóða til málþings næstkomandi föstudag, 4. mars, frá kl. 13:15 til kl. 16:30 í stofu M.1.01 (Bellatrix) á 1. hæð HR að Menntavegi 1. Allir velkomnir.
Tillögur um mannréttindafræðslu í grunn- og framhaldsskólum
Umboðsmaður barna vill vekja athygli á skýrslunni Mannréttindafræðsla á Íslandi - tillögur um mannréttindafræðslu í grunn- og framhaldsskólum sem kom út árið 2008.
Reglur um úthlutun jöfnunarstyrks til skoðunar
Í byrjun desember á síðasta ári sendi umboðsmaður barna menntamálaráðherra bréf þar sem bent er á að reglur um úthlutun jöfnunarstyrks feli í sér mismunun á grundvelli ríkisfangs sem brýtur í bága við 2. gr. Barnasáttmálans. Nú hefur umboðsmanni borist svarbréf þar sem segir að ráðuneytið muni hafa þessa ábendingu til hliðsjónar við undirbúning frumvarps til breytinga á lögum um námsstyrki nr. 79/2003.
Opinbert hollustumerki myndi auka neytendavernd barna
Leiðbeiningar um neytendavernd barna yrðu strax mun virkari ef hollustumerki að skandinavískri fyrirmynd (skráargatsmerki) yrði tekið upp eins og talsmaður neytenda og umboðsmaður lögðu til fyrir tveimur árum.
Börn sem eru vitni að heimilisofbeldi
Barnaheill - Save the Children á Íslandi kynnti í gær nýja rannsókn um stuðning við börn sem búa við heimilisofbeldi. Skýrslan sýnir að úrræðum fyrir þau börn sem verða vitni að heimilisofbeldi er afar ábótavant.
Frumvarp til laga um félagslega aðstoð (hámark umönnunargreiðslna), 114. mál.
Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um félagslega aðstoð (hámark umönnunargreiðslna), 114. mál. Umsögn sína veitt umboðsmaður barna í bréfi dags. 16. febrúar 2011.
Tillaga til þingsályktunar um staðgöngumæðrun (heimild til staðgöngumæðrunar), 310. mál.
Heilbrigðisnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um tillögu til þingsályktunar um staðgöngumæðrun (heimild til staðgöngumæðrunar), 310. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 16. febrúar 2011.
Síða 13 af 16