2. febrúar 2011

Átta ára drengur óskar eftir íbúð - Málþing Barnaheilla

Barnaheill - Save the Children á Íslandi mun standa fyrir málþingi um börn sem búa við heimilisofbeldi fimmtudaginn 17. febrúar nk. á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 9 til kl. 13. Yfirskrift málþingsins er Átta ára drengur óskar eftir íbúð.

Átta ára drengur óskar eftir íbúð

Málþing Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um börn sem búa við heimilisofbeldi

verður fimmtudaginn 17. febrúar nk. á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 9-13

Markmið málþingsins er að vekja umræður um mikilvægi þess að börnum sem búa við kynbundið ofbeldi á heimilum sínum sé gefin gaumur og þau fái nauðsynlegan stuðning og aðstoð.

Á málþinginu verða m.a. kynntar niðurstöður rannsóknar Barnaheilla –Save the Children á Íslandi um hvaða stuðningur er í boði fyrir börn í Reykjavík sem alast upp við kynbundið ofbeldi. Rannsóknin er styrkt af Daphne-áætlun Evrópusambandsins og er unnin í samvinnu við Barnaheill –Save the Children á Spáni og Ítalíu.

Dagskrá:

9:00 Helgi Ágústsson formaður Barnaheilla –Save the Children á Íslandi býður gesti velkomna.

9:15 Myndband frá nemendum í Austurbæjarskóla.

9:20 Anni Haugen, lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands: Það þarf kjark og fagmennsku til að horfast í augu við vonda hluti. Viðbrögð hins opinbera og félagasamtaka gagnvart börnum sem búa ofbeldi á heimilum

9:50 Myndband frá nemendum í Snælandsskóla

9:55 Guðrún Kristinsdóttir, prófessor á  Menntavísindasviði Háskóla: Börn verða vitni að ofbeldi heima

10:25 Kaffihlé

10:45 Myndband frá nemendum í Austurbæjarskóla

10:50 Örnólfur Thorlacius, verkefnastjóri Barnaheilla –Save the Children á Íslandi : Átta ára drengur óskar eftir íbúð. Niðurstöður rannsóknaverkefnis Barnaheilla- Save the Children á Íslandi.

11:35 Myndband frá nemendum í Snælandsskóla

11:40 Pallborðsumræður með þátttöku Braga Guðbrandssonar forstjóra Barnaverndarstofu, Einars Gylfa Jónssonar frá Körlum til ábyrgðar, Ellýjar Öldu Þorsteinsdóttur skrifstofustjóra velferðarsviðs Reykjavíkur, Halldóru Dröfn Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra barnaverndar Reykjavíkur, Ragnars Þorsteinssonar fræðslustjóra Reykjavíkur, Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur sviðsstjóra Skólasviðs

Heilsugæslu höfðuborgarsvæðisins og  Sigþrúðar Guðmundsdóttur fræðslu- og framkvæmdastýru Kvennaathvarfs

12:45 Málþingsslit

Fundarstjóri er Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla –Save the Children á Íslandi.

Málþingið á erindi til allra er vinna með börnum. Þátttaka tilkynnist með því að senda tölvupóst á barnaheill@barnaheill.is fyrir fimmtudaginn 10. febrúar.                    


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica