Fréttir: nóvember 2007 (Síða 3)

Fyrirsagnalisti

12. nóvember 2007 : Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar - Ný bók

Út er komin bókin Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar eftir dr. Sigrúnu Aðalbjarnardóttur prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands.

12. nóvember 2007 : „Aldrei ofbeldi” sagði Astrid Lindgren. Hver er sjónarhóll barna og ungs fólks? - Málstofa

Miðvikudaginn 14. nóvember nk. mun sænska sendiráðið í samvinnu við félagsráðgjafarskor félagsvísindadeildar Háskóla Íslands og Rannsóknarsetur í barna- og fjölskylduvernd standa fyrir málstofu í tilefni af 100 ára afmæli Astrid Lindgren. Málstofan verður haldin í stofu 101 Odda kl. 12.15.

12. nóvember 2007 : Kennslu um kynferðisofbeldi gegn börnum og barnavernd ábótavant í íslenskum háskólum - Úttekt Barnaheilla

Samtökin Barnaheill segja í frétt á vefsíðu sinni, www.barnaheill.is, frá könnun sem þau létu nýlega gera á áherslum í kennslu á háskólastigi fyrir verðandi fagfólk í menntamálum, í félags- og heilbrigðisþjónustu, í dómskerfinu og í löggæslu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

12. nóvember 2007 : Heimsókn í Öskjuhlíðarskóla

Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, heimsótti nemendur og starfsfólk Öskjuhlíðarskóla á síðasta föstudag, 9. nóvember.

9. nóvember 2007 : Réttindi barna við skilnað - Ráðstefna

Á sunnudag, 11. nóvember er feðradagurinn. Í tilefni hans stendur Félag um foreldrajafnrétti fyrir ráðstefnu um réttindi barna við skilnað.

8. nóvember 2007 : Neytendafræðsluleikur fyrir unglinga á Netinu

Talsmaður neytenda segir frá þvi á vefsíðu sinni, að búið sé að gefa út á Netinu nýjan norrænan tölvuleikur sem ætlað er að fræða unglinga um neytendamál.

5. nóvember 2007 : Netnotkun barna og unglinga - Niðurstöður könnunar

Í síðustu viku birti SAFT niðurstöður nýlegrar könnunar á netnotkun barna og unglinga. Um 69% foreldra ræðir frekar eða mjög mikið við börn sín um öryggi á netinu.
Síða 3 af 3

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica