24. september 2026

Umboðsmaður barna hvetur til þess að sett verði leiðbeinandi viðmið um frístundaakstur

Umboðsmaður barna hefur sent Sambandi íslenskra sveitarfélaga erindi þar sem vakin er athygli á þörf fyrir sameiginleg leiðbeinandi viðmið um frístundaakstur barna. 

Embættinu hafa á síðustu árum borist ábendingar um öryggi og umsjón barna við frístundaakstur frá skólum og frístundaheimilum í íþrótta- og tómstundastarf. Ábendingarnar lúta meðal annars að því að ungum börnum sé ekki ávallt fylgt alla leið á áfangastað, að þau séu án fullnægjandi umsjónar meðan beðið er eftir að íþrótta- og tómstundastarf hefjist og að ábyrgð og upplýsingaflæði milli þeirra aðila sem koma að þjónustunni sé ekki nægilega skýrt. Umboðsmaður barna hefur áður sent erindi, dags. 20. október 2022 , 18. október 2023 og 1. september 2026 , til Reykjavíkurborgar vegna málsins.

Umboðsmaður barna leggur áherslu á að umsjón með börnum sé samfelld frá því þau yfirgefa skóla eða frístundaheimili og þar til þau eru komin í umsjón ábyrgðaraðila í íþrótta- eða tómstundastarfi. Ábyrgðarskil þurfi að vera skýr og upplýsingamiðlun milli þeirra aðila sem koma að þjónustunni markviss. Þá þurfi að tryggja að ökumaður geti einbeitt sér að öruggum akstri í stað þess að bera jafnframt ábyrgð á umsjón ungra barna. Ekki sé hægt að ætlast til þess að ung börn beri sjálf ábyrgð á eigin öryggi.

Þar sem frístundaakstur er í boði í ýmsum sveitarfélögum og fyrirkomulag þjónustunnar getur verið mismunandi telur umboðsmaður barna þörf á sameiginlegum leiðbeinandi viðmiðum um framkvæmd hennar. Í ljósi hlutverks Sambands íslenskra sveitarfélaga sem sameiginlegs vettvangs sveitarfélaga telur umboðsmaður barna mikilvægt að Sambandið hafi frumkvæði að gerð slíkra viðmiða og miðli þeim til sveitarfélaga.

Hægt er að lesa bréf umboðsmanns barna hér .


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica