Umboðsmaður barna ítrekar mikilvægi öryggis við frístundaakstur
Umboðsmaður barna hefur beint erindi til Reykjavíkurborgar vegna öryggis barna við frístundaakstur og fylgd þeirra úr frístundaheimilum í skipulagt íþrótta- og tómstundastarf.
Umboðsmaður hefur áður vakið athygli Reykjavíkurborgar á málefninu, meðal annars á því að börnum í yngstu bekkjum grunnskóla sé ekki ávallt fylgt alla leið á æfingar, að börn séu eftirlitslaus og að ábyrgð þeirra aðila sem koma að þjónustunni sé ekki nægilega skýr. Þar sem embættinu berast enn ábendingar um framkvæmd frístundaaksturs í Reykjavík taldi umboðsmaður tilefni til að ítreka fyrri sjónarmið.
Umboðsmaður barna leggur áherslu á að umsjón með börnum sé samfelld frá því að þau yfirgefa skóla eða frístundaheimili og þar til þau eru komin í umsjón þess aðila sem tekur við þeim í íþrótta- eða tómstundastarfi og að á hverjum tíma sé skýrt hver beri ábyrgð á öryggi þeirra.
Hægt er að lesa bréfið hér .