Fréttir: maí 2008 (Síða 3)

Fyrirsagnalisti

7. maí 2008 : Námsstefna um útinám og skólastarf

Kennaraháskóla Íslands stendur fyrir námsstefnunni Að læra úti. Útinám og skólastarf í samvinnu við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Farskólann - miðstöð símenntunnar, Hólaskóla - háskólann á Hólum og grunn- og leikskóla í Skagafirði.  Námsstefnan fer fram fimmtudaginn 15. maí 2008, kl. 14.00-18.00
í sal Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.

5. maí 2008 : Persónuupplýsingar um börn

Á heimasíðu Persónuverndar segir í frétt dags. 28. apríl frá því að hinn 18. febrúar sl. hafi hinn sk. „29. gr. starfshópur" samþykkt vinnuskjal um vernd persónuupplýsinga um börn. Hópurinn sinnir ráðgjafarhlutverki um persónuverndarmálefni í Evrópusambandinu og á m.a. að stuðla að samræmi í framkvæmd persónuverndarlöggjafar í Evrópu.

5. maí 2008 : Skuldajöfnun barnabóta

Umboðsmaður barna hefur ritað fjármálaráðuneytinu bréf þar sem hann bendir á að hann telji eðlilegra að barnabætur séu hluti af félagslega kerfinu og tryggi þannig fjölskyldum þann stuðning sem þeim er ætlaður frekar en þær séu hluti af skattkerfinu.

5. maí 2008 : Fötlun og samfélag - Vornámskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins

Vornámskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður handið dagana 8. og 9. maí nk. á Grand Hótel Reykjavík. Efni námskeiðsins er að þessu sinni fötlun og samfélag. 

2. maí 2008 : Réttur barna sem getin eru með tæknifrjóvgun til upplýsinga um uppruna sinn

Í Morgunblaðiðnu sunnudaginn 6. apríl 2008 birtist opið bréf til umboðsmanns barna frá Stellu Gróu Óskarsdóttur þar sem hún veltir fyrir sér rétti barna, sem getin eru í  tæknifrjóvgun með gjafasæði eða gjafaeggi, til þess að fá upplýsingar um uppruna sinn.
Síða 3 af 3

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica