Fréttir: 2007 (Síða 5)

Fyrirsagnalisti

5. nóvember 2007 : Netnotkun barna og unglinga - Niðurstöður könnunar

Í síðustu viku birti SAFT niðurstöður nýlegrar könnunar á netnotkun barna og unglinga. Um 69% foreldra ræðir frekar eða mjög mikið við börn sín um öryggi á netinu.

24. október 2007 : Áhrif áfengisauglýsinga á neyslu ungs fólks

Því meira sem ungt fólk sér af áfengisauglýsingum því meiri líkur eru á að það drekki áfengi. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknaverkefnisins ELSA og ennfremur að reglur sem gilda um áfengisauglýsingar í Evrópu dugi ekki til að vernda ungt fólk gegn auglýsingunum.

22. október 2007 : Skólaheimsóknir

Í síðustu viku heimsótti umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, ásamt starfsmanni embættisins, Eðvaldi Einari Stefánssyni, nokkra skóla sem taka þátt í verkefninu "Hvernig er að vera barn á Íslandi".

22. október 2007 : Réttur barna til beggja foreldra - Lögheimili barna

Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, mun halda erindi á annarri málstofu RBF og félagsráðgjafarskorar HÍ miðvikudaginn 24. október. Yfirskrift erindisins er Réttur barna til beggja foreldra - Lögheimili barna.

17. október 2007 : Maður brýnir mann - Samskipti Umhyggja Samábyrgð

Árlegt málþing KHÍ verður haldið dagana 18. og 19. október. Yfirskriftin er Maður brýnir mann - Samskipti Umhyggja Samábyrgð

16. október 2007 : Snemmtæk íhlutun í leikskóla - Málþing

Snemmtæk íhlutun í leikskóla er yfirskrift málþings sem þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis standa fyrir föstudaginn 12. október í Kennaraháskóla Íslands. Á málþinginu verður fjallað um hugmyndafræði, framkvæmd, gæðaviðmið þjónustu og reynslu leikskóla af snemmtækri íhlutun.

16. október 2007 : Rödd barna við skilnað - veruleiki og þróum úrræða - Morgunverðarfundur

Rödd barna við skilnað - veruleiki og þróum úrræða er yfirskrift opins morgunverðarfundar sem fræðslunefnd Félagsráðgjafafélags Íslands stendur fyrir á Grand hóteli miðvikudaginn 17.okt. kl. 08:15-10:00

11. október 2007 : Manna börn eru merkileg - Ráðstefna Þroskahjálpar

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á ráðstefnu Þroskahjálpar „Manna börn eru merkileg“ sem haldinn verður laugardaginn 13. október á Grand hótel í Reykjavík. Umboðsmaður verður með erindi á ráðstefnunni auk fjölda fræðimanna, fagfólks og annarra með reynslu af málaflokknum.

8. október 2007 : Hugsanlegt norrænt hollustumerki gæti auðveldað vernd barna

Unnið er að því nú að kanna möguleika á samnorrænu, valfrjálsu hollustumerki. Slíkt merki myndi væntanlega auðvelda viðleitni umboðsmanns barna og talsmanns neytenda við að setja frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börnum.
Síða 5 af 15

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica