Fréttir: maí 2007

Fyrirsagnalisti

30. maí 2007 : Sumarið er tíminn - Morgunverðarfundur

Þriðjudaginn 5. júní mun Náum áttum hópurinn sem umboðsmaður barna á fulltrúa í halda morgunverðarfund á Grandhóteli. Yfirskriftin að þessu sinni er: Sumarið er tíminn: samvera, útihátíðir; ábyrgð hverra?

25. maí 2007 : Hvenær má ég hvað? - Nýtt veggspjald

Út er komið hjá umboðsmanni barna veggspjaldið "Hvenær má ég hvað?" Veggspjaldið hefur að geyma helstu ákvæði íslenskra laga um réttindi barna og unglinga, 0-18 ára.

24. maí 2007 : Börn og umhverfi - Námskeið

Rauði krossinn stendur fyrir námskeiðinu Börn og umhverfi fyrir ungmenni á 12. aldursári og eldri. Námskeiðið verður haldið víða um landið í lok maí og fyrri hluta júnímánaðar.

23. maí 2007 : Innritun í framhaldsskóla

Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2007 fer fram á netinu. Umsóknarfrestur er til 11. júní.

23. maí 2007 : Klám - ógnun við velferð barna

Rannsóknasetur í barna og fjölskylduvernd (RBF) og Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ) bjóða til opins fyrirlesturs David L. Burton, MSW, Ph.D, í dag, miðvikudag 23. maí kl. 12:00-13:00

22. maí 2007 : Háskóli unga fólksins

Háskóli Íslands heldur sumarskóla handa 12-16 ára börnum og unglingum.

16. maí 2007 : Rannsóknastofa í menntunarfræðum ungra barna stofnuð

Í  gær var undirritaður samningur um stofnun rannsóknastofu í menntunarfræðum ungra barna við Kennaraháskóla Íslands.

15. maí 2007 : Skýrsla um lestrarörðugleika og leshömlun

Út er komin skýrsla nefndar um lestrarörðugleika og leshömlun þar sem settar eru fram tillögur til úrbóta auk þess sem færð eru rök fyrir mikilvægi þeirra úrbóta sem talin er þörf á.

11. maí 2007 : Foreldrar vanmeta höfuðverk barna

Börn fá oftar höfuðverk en foreldrar þeirra telja að því er fram kemur á forskning.no
Síða 1 af 2

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica