Öflun gagna og könnun á regluverki

Áður en ráðist er í framkvæmd mats á því sem barni er fyrir bestu, þurfa að liggja fyrir nauðsynleg gögn og upplýsingar, eins og t.d. um gangreyndar aðferðir, tölfræðileg gögn og niðurstöður rannsókna. Mikilvægt er að fram komi í gögnum málsins á hvaða gögnum og upplýsingum var byggt við framkvæmd matsins.

Ef starfsemin er þess eðlis að reglulega eru sambærileg mál til meðferðar, er hægt að nýta handbækur, leiðbeiningar, verklagsreglur og ferla, sem byggja á þekkingu á málefnum og réttindum barna.

Hvað segir regluverkið?

Beita á Barnasáttmálanum og meginreglum hans í öllum málum sem varða börn en einnig er mikilvægt að fyrir liggi upplýsingar um það regluverk sem gildir um viðkomandi málefni.

Túlkun og beiting Barnasáttmálans

Leiðbeiningar um túlkun og beitingu Barnasáttmálans má t.d. finna í niðurstöðum innlendra og alþjóðlegra dómstóla í tilteknum málum sem varða börn. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur með almennum athugasemdum sínum veitt leiðbeiningar um túlkun sáttmálans, en þær leiðbeiningar taka ýmist til tiltekinna réttinda, tiltekinna ákvæða sáttmálans eða tiltekinna hópa barna.

Nefnd um réttindi barnsins í Genf - Barnaréttarnefndin

Gátlisti

  • Hvaða gögn og upplýsingar þurfa að liggja fyrir þannig að unnt sé að leggja mat á það hvaða áhrif eru fyrirsjáanleg á réttindi barna?

  • Hvaða gagnreyndu aðferðir geta nýst við framkvæmd matsins?

  • Er hægt að byggja á niðurstöðum rannsókna og fyrirliggjandi tölfræðiupplýsingum?

  • Skortir upplýsingar um atriði sem geta skipt máli?

  • Hvaða lög, reglugerðir og aðrar reglur eiga við?

  • Hvaða leiðbeiningar veitir Barnasáttmálinn?


Næsti kafli - Þátttaka barna

Til baka á efnisyfirlit


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica