Umboðsmaður barna óskar eftir upplýsingum um viðbrögð Strætó við ábendingum barna
Umboðsmaður barna hefur sent Strætó bréf til að fylgja eftir ábendingum og tillögum barna sem komu fram á samráðsfundi í febrúar 2025.
Samráðsfundurinn var haldinn 1. febrúar 2025 að frumkvæði ráðgjafarhóps umboðsmanns barna, ungmennaráðs UNICEF og Strætó. Þar ræddu börn og ungmenni við fulltrúa Strætó og kjörna fulltrúa sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu um umbætur á þjónustu Strætó með hag barna að leiðarljósi. Niðurstöður fundarins voru sendar Strætó með bréfi umboðsmanns barna þann 13. febrúar 2025.
Á fundinum komu fram fjölmargar tillögur um meðal annars öryggi, samskipti, leiðarkerfi, gjaldskrá og aðgengi að þjónustunni. Þá komu fram áhyggjur barna af öryggi sínu í strætisvögnum og frásagnir þeirra af áreitni frá öðrum farþegum.
Í bréfinu er óskað eftir upplýsingum um hvernig Strætó hefur brugðist við ábendingum barnanna, hvaða aðgerða hafi verið gripið til og hvaða úrbætur séu fyrirhugaðar.
Óskað hefur verið eftir svör berist fyrir 10. nóvember nk.