11. febrúar 2013

Tillaga til þingsályktunar um velferðarstefnu – heilbrigðisáætlun til ársins 2020, 470. mál.

Velferðarnefnd Alþingis óskaði eftitr umsögn umboðsmanns barna um tillögu til þingsályktunar um velferðarstefnu – heilbrigðisáætlun til ársins 2020, 470. mál.
Umsögn sína veitt umboðsmaður með tölvupósti dags. 11. febrúar 2012.

Velferðarnefnd Alþingis óskaði eftitr umsögn umboðsmanns barna um tillögu til þingsályktunar um velferðarstefnu – heilbrigðisáætlun til ársins 2020, 470. mál.
Umsögn sína veitt umboðsmaður með tölvupósti dags. 11. febrúar 2012.

Skoða tillögu til þingsályktunar um velferðarstefnu – heilbrigðisáætlun til ársins 2020, 470. mál.
Skoða feril málsins.

Umsögn umboðsmanns barna

Nefndasvið Alþingis
Velferðarnefnd
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík


Reykjavík,11. febrúar 2013
UB:1302/4.1.1

Efni: Tillaga til þingsályktunar um velferðarstefnu – heilbrigðisáætlun til ársins 2020, 470. mál.

Vísað er til tölvupósts frá nefndasviði Alþingis, dags. 24. janúar sl., þar sem óskað er eftir umsögn umboðsmanns barna um ofangreinda tillögu.

Umboðsmaður barna telur mikilvægt að til staðar sé heildaráætlun í heilbrigðismálum og fagnar því ofangreindri tillögu.

Í tillögunni meðal annars fjallað um að vinna skuli stefnu í áfengis- og vímuefnavörnum og geðheilbrigðismálum, sbr. kafla B.4 um áfengis-, vímuefna- og tóbaksvarnir annars vegar og kafla um B.6 geðheilsu hins vegar. Umboðsmaður barna hefur verulegar áhyggjur af skorti á úrræðum fyrir börn sem eiga við geðræn vandamál að stríða eða stefna eigin velferð í hættu vegna vímuefnaneyslu eða hegðunarvandamála. Telur umboðsmaður því ástæðu til að umrædd drög kveði á um unnið verði að því að koma á fót frekari úrræðum fyrir börn með ofangreindan vanda og stytta biðlista eftir greiningu eða þjónustu verulega, til dæmis hjá barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). 

Umboðsmaður barna telur jákvætt að 1. aðgerð í kafla B.5 um  slysa- og ofbeldisvarnir miði að því að efla skráningu á slysum og áverka vegna ofbeldis. Umboðsmaður barna telur þó ástæðu til að árétta enn frekar að efla skuli skráningu á öllum slysum sem varðar börn. Sömuleiðis er mikilvægt að kveða á um að efla skuli rannsóknir á slysum sem börn verða fyrir. Oft á tíðum má reka áverka barna vegna atvika sem eru skráð sem slys til vanþekkingar þeirra sem gæta barnanna eða ófullnægjandi búnaðar í þeirra umhverfi. Fullnægjandi skráning og rannsókn á áverkum barna er því til þess fallin að fækka slysum á börnum og tryggja þeim aukið öryggi og vernd. Ennfremur telur umboðsmaður mikilvægt að fram komi í heilbrigðisáætlun að slysavörnum barna skuli fundinn varanlegur staður á vegum hins opinbera, til að tryggja að almenningur eigi kost á ókeypis ráðgjöf og leiðbeiningum fagfólks á sviði slysavarna.

Umboðsmaður barna fagnar því sérstaklega að stefnt sé að því að fjölga heilsugæslustöðvum sem bjóða upp á unglingamóttöku., sbr. 7. aðgerð í kafla C.2 um heilsugæslu. Umboðsmaður telur þó mikilvægt að slíkar unglingamóttökur séu í boði fyrir börn frá 12 ára aldri, en ekki 14 ára eins og drögin gera ráð fyrir. Umboðsmaður fær reglulega fyrirspurnir frá börnum á aldrinum 12 til 14 ára varðandi kynlíf, kynheilbrigði og önnur málefni sem brenna á unglingum og telur hann því fulla ástæðu til að sá hópur geti leitað sér ráðgjafar á heilsugæslustöðvum, rétt eins og eldri ungmenni.

Virðingarfyllst,

Margrét María Sigurðardóttir,
umboðsmaður barna


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica