29. janúar 2016

Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna fundar með menntamálaráðherra

Í gær funduðu fulltrúar frá ráðgjafarhópi umboðsmanns barna með Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra ásamt starfsmönnum mennta-og menningarmálaráðuneytis.

Ráðgjafarhópinn skipa þau María Fema Wathne 16 ára, Þórdís Helga Ríkharðsdóttir 14 ára, Inga Huld Ármann 15 ára, Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir 15 ára, Íris Líf Stefánsdóttir 14 ára, Sólrún Elín Freygarðsdóttir 15 ára, Kristján Helgason 15 ára, Þorbjörg Arna Jónasdóttir 15 ára, María Theódóra Jónsdóttir 16 ára, Rakel Sól Pétursdóttir 13 ára og Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir 15 ára.

Á fundinum voru málefni sem brenna á grunn-og framhaldsskólanemum rædd. Má þar nefna einstaklingsmiðað nám, skóla-og námsumhverfi, kennaramat, réttinda-og jafningjafræðslu og einna helst var hópurinn að koma þeim skilaboðum á framfæri til ráðamanna að þeim beri skylda til þess að leita eftir röddum ungs fólks þegar kemur að ákvörðunartökum sem snúa að þeim.

Fundurinn var afar fróðlegur og gagnlegur og skilaði ráðgjafarhópurinn formlegum tillögum til ráðherra um þær leiðir sem hópurinn telur hentugar til þess að ná til barna og ungmenna. Er það von hópsins að ráðherra leiti oftar eftir sjónarmiðum barna og ungmenna áður en teknar eru ákvarðanir um menntamál og fylgi þannig 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, í sinni vinnu.

12. grein. - Réttur til að láta skoðanir sínar í ljós og til að hafa áhrif
Börn eiga rétt á að láta í ljós skoðanir sínar í öllum málum er varða þau og að tekið sé réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska. Börnum skal veitt tækifæri til að tjá sig um eigin málefni við málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi.

Tillögurnar sem ráðgjafarhópurinn lagði fram eru þessar:

  • Að mennta-og menningarmálaráðuneytið leiti markvisst eftir röddum barna og ungmenna t.d. með kosningum, með því að leggja fyrir kannanir, leita í samráðsvettvang ungmennaráða eða leita til ráðgjafarhóps umboðsmanns barna þegar verið er að taka ákvarðanir eða móta stefnur sem snúa að börnum og ungmennum.
  • Að mennta-og menningarmálaráðuneytið stuðli að auknum áhrifum barna á sitt umhverfi t.d. með því að tryggja að skylt verði að hafa reglulegt mat á kennurum og mat á skólastarfi og skólaumhverfi.
  • Að mennta-og menningarmálaráðuneyti setji fram efni sem er aðlagað að börnum og ungmennum. Það er mikilvægt að við fáum upplýsingar á því máli sem við skiljum
  • Að mennta-og menningarmálaráðuneytið auki upplýsingaflæði til barna og ungmenna og vinni eftir 3. og 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fjalla um hvað er börnum fyrir bestu og rétt þeirra til þess að hafa áhrif t.d. með opnum kynningarfundum um breytingar á Aðalnámskrá grunnskólanna og breytingum á einkunnakerfi.

 

Ráðgjafarhópur ub fyrir fund með menntamálaráðherra

 

Ráðgjafarhópur ub með menntamálaráðherra og umboðsmanni barna


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica