3. júlí 2007

Ofbeldi á börnun – Niðurstöður íslenskrar rannsóknar

Fimmta hvert barn á grunnskólaaldri hér á landi hefur sætt líkamlegu ofbeldi á heimili og er hlutfallið svipað á vettvangi skólans. Allt að þriðjungur telur sig hafa sætt andlegu ofbeldi í einhverri mynd og tæplega einn af hverjum tíu greinir frá kynferðislegu ofbeldi í einhverri mynd.

Fimmta hvert barn á grunnskólaaldri hér á landi hefur sætt líkamlegu ofbeldi á heimili og er hlutfallið svipað á vettvangi skólans. Allt að þriðjungur telur sig hafa sætt andlegu ofbeldi í einhverri mynd og tæplega einn af hverjum tíu greinir frá kynferðislegu ofbeldi í einhverri mynd.

Þetta kemur m.a. fram í niðurstöðum rannsóknar, sem Barnaverndarstofa gerði meðal nemenda í 7. og 9. bekkjum grunnskóla. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegri rannsókn á ofbeldi í garð barna.

Alþjóðasamtökin gegn ofbeldi og vanrækslu í garð barna (ISPCAN eða The International Society for the Prevention of Abuse and Neglect) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF eða United Nations Children´s Fund) fóru þess á leit við Barnaverndarstofu að Ísland, líkt og flest lönd heims, tæki þátt í alþjóðlegri rannsókn á ofbeldi í garð barna.

Tilgangur rannsóknarinnar var annars vegar að afla upplýsinga um reynslu barna af ofbeldi og hins vegar að þróa mælitæki sem gefur áreiðanlegar og sambærilegar niðurstöður um reynslu barna af ofbeldi. Mikilvægt þótti að framkvæma slíka rannsókn þar sem sjónarhorni barnanna sjálfra hefur oftast verið gefinn lítill gaumur í rannsóknum á ofbeldi.

Tvenns konar spurningalistar voru lagðir fyrir bekkjardeildir 7. og 9. bekk grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, landsbyggðinni og í dreifbýli. Annars vegar var lagður fyrir spurningalisti varðandi ofbeldi á heimili barnanna eða í grennd við heimilið og hins vegar spurningalisti varðandi ofbeldi við skóla eða vinnustað.

Hér má sjá niðurstöður rannsóknarinnar en vert er að taka það fram að um forprófun listanna var að ræða og því er úrtak lítið. Varhugavert er því að alhæfa útfrá niðurstöðunum en þær gefa vissulega vísbendingar um reynslu barna af ofbeldi.



Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica