23. september 2026

Bið barna eftir þjónustu í september 2026

Umboðsmaður barna birtir nú í tíunda sinn upplýsingar um bið barna eftir þjónustu.

Löng bið eftir þjónustu við börn hefur verið viðvarandi vandamál til margra ára. Með það að markmiði að varpa ljósi á raunverulega stöðu barna hefur umboðsmaður barna, frá því í desember 2021, staðið fyrir reglulegri upplýsingaöflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hjá tilteknum aðilum.

Samstarfsaðilar verkefnisins eru Barna- og fjölskyldustofa, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Geðheilsumiðstöð barna, Ráðgjafar- og greiningarstöð, Barna- og unglingageðdeild LSH, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnanir Norðurlands, Suðurlands, Vesturlands, Suðurnesja, Austurlands og Vestfjarða, Heilsuskóli Barnaspítalans og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.

Umboðsmaður barna starfar samkvæmt lögum um umboðsmann barna nr. 83/1994 og hefur það hlutverk að standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi barna. Liður í því er að afla og miðla gögnum og upplýsingum um aðstæður barna og stöðu tiltekinna hópa barna hverju sinni í samvinnu við ýmsa aðila. Hluti þeirrar vinnu er að gera aðgengilegar á einum stað upplýsingar um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hverju sinni. Upplýsingarnar eru uppfærðar á sex mánaða fresti til að fylgjast með þróuninni og er þetta í tíunda skiptið sem þær eru birtar.

Það er von umboðsmanns barna að birting þessara upplýsinga muni varpa ljósi á raunverulega stöðu barna í íslensku samfélagi og verði stjórnvöldum hvatning til aðgerða og úrbóta. Söfnun og birting upplýsinganna er jafnframt liður í því hlutverki umboðsmanns að stuðla að frekari innleiðingu Barnasáttmálans.

Að mati umboðsmanns barna þurfa stjórnvöld að grípa til aðgerða með það að markmiði að koma í veg fyrir að börn þurfi að bíða eftir þjónustu sem þau þarfnast og eiga rétt á. Það er til að mynda ótækt að biðtími barna eftir heilbrigðisþjónustu samræmist ekki þeim almennu viðmiðum sem embætti landlæknis hefur sett um biðtíma en samkvæmt þeim á skoðun hjá sérfræðingi að fara fram innan 30 daga frá því beiðni er lögð fram og meðferð að fara fram innan 90 daga frá greiningu. Þá er ljóst að ef lög nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna eiga að ná markmiðum um snemmtækan stuðning þarf að koma í veg fyrir að langir biðlistar myndist eftir þjónustu. Samkvæmt 24. gr. Barnasáttmálans eiga börn rétt á að njóta besta heilsufars sem hægt er að tryggja og ber aðildarríkjum sáttmálans að kappkosta að tryggja að ekkert barn fari á mis við rétt sinn til að njóta slíkrar heilbrigðisþjónustu. Þá ber jafnframt að tryggja öllum börnum jöfn tækifæri til þess að ná þroska, sbr. 6. gr. Barnasáttmálans.

Langur biðtími barna eftir þjónustu getur haft afgerandi áhrif á þroska og lífsgæði barna. Stjórnvöld þurfa að bregðast við stöðunni eins og hún er í raun og veru og tryggja að kerfin starfi í þágu barnanna. Það er ekki í samræmi við réttindi barna að þau bíði mánuðum eða jafnvel árum saman eftir greiningu eða meðferð,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.

Snemmtæk íhlutun og samþætt þjónusta í þágu farsældar barna

Börn eiga rétt á að þörfum þeirra sé mætt hvort sem formleg greining liggur fyrir eða ekki. Þá gera farsældarlögin ráð fyrir því að einstaklingsbundinn stuðningur sé veittur í samræmi við frummat á þörfum barns og formleg greining sé ekki forsenda stuðnings. Sá réttur dregur hins vegar ekki úr mikilvægi þess að börn fái nauðsynlega greiningu án þess að þurfa að bíða eftir henni í lengri tíma, enda er rétt greining forsenda þess að börn fái viðeigandi meðferð og stuðning. Börn bíða ekki aðeins eftir greiningu, heldur einnig eftir meðferð og þjálfun t.d. hjá sálfræðingum og talmeinafræðingum.

Bið eftir skimun og frumgreiningu

Umboðsmaður barna hefur fengið ábendingar um að upplýsingar um bið eftir þjónustu hjá m.a. Ráðgjafar- og greiningarstöð og Geðheilsumiðstöð barna varpi aðeins ljósi á hluta þess tíma sem börn þurfi að bíða eftir greiningu vegna m.a. gruns um ADHD og einhverfu. Áður en börn fara á biðlista hjá áðurnefndum aðilum hafa börnin þurft að bíða eftir skimun og frumgreiningu hjá sínu sveitarfélagi. Til þess að fá skýrari mynd af biðtíma barna hefur embættið óskað eftir upplýsingum frá tuttugu fjölmennustu sveitarfélögum landsins um bið barna eftir frumgreiningu og samþykktri þjónustu. Enn er verið að bíða eftir gögnum frá sveitarfélögum og þess vegna er ekki hægt að birta umræddar upplýsingar samhliða nýjum upplýsingum um bið barna eftir þjónustu eins og áætlað var.

Dæmi um niðurstöður :

  • Hjá Geðheilsumiðstöð barna (GMB) bíða nú 2.705 börn eftir þjónustu og hafa 2.591 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Í febrúar hafði börnum á biðlista GMB fækkað frá mælingunni á undan, en sú þróun hefur nú snúist við. Börnum á biðlista hefur fjölgað um 252 frá því í febrúar, úr 2.453 í 2.705. Fjölgunin er sérstaklega áberandi meðal barna sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði. Í febrúar voru þau 1.900 en eru nú 2.591 og hefur þeim því fjölgað um 691 frá síðustu mælingu. Til samanburðar biðu 738 börn eftir þjónustu hjá GMB þegar umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir upplýsingum um bið barna eftir þjónustu í desember 2021.
  • Hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð bíða 774 börn eftir greiningu og hafa 697 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Börnum á biðlista hefur fjölgað um 59 frá því í febrúar, úr 715 í 774. Á sama tíma hefur börnum sem beðið hafa lengur en þrjá mánuði fjölgað um 53, úr 644 í 697.
  • Það bíða 206 börn eftir sálfræðiþjónustu hjá heilbrigðisstofnun Norðurlands og 165 börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði, sem er töluverð aukning frá því í febrúar þar sem 135 börn biðu eftir þjónustu og 87 þeirra höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Til samanburðar bíður 153 barn eftir sálfræðiþjónustu hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og 84 börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði. Fjöldi barna sem bíður á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað talsvert frá því í febrúar, en þá beið 221 barn. Meðalbiðtími hjá heilbrigðisstofnun Norðurlands er 428 dagar (14 mánuðir) en 118 dagar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
  • Það bíða 42 börn eftir þjónustu göngudeildar BUGL, meðalbiðtími er þrír mánuðir og 31 barn hefur beðið lengur en þrjá mánuði. Þetta er töluverð aukning frá því í febrúar 2026 en þá var meðalbiðtími 1,9 mánuðir og ekkert barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði.
  • Hjá BOFS bíða fá börn eftir úrræðum, 14 börn bíða eftir MST-þjónustu og tvö eftir styrktu fóstri. Þá bíður ekkert barn eftir meðferð á Stuðlum, Lækjarbakka, SÓK, Esju eða hjá Bjargey.

Nýjar upplýsingar og samanburður

Upplýsingar um biðbarna eftir þjónustu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Fyrstu sex mánuði ársins 2026 höfðu 11 börn stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli og 103 í ofbeldisbrotamáli. Á sama tímabili höfðu 44 börn stöðu brotaþola í kynferðisbrotamáli og 137 í ofbeldisbrotamáli.

Það er mikið áhyggjuefni hversu mikil aukning hefur orðið á því að börn hafi stöðu sakbornings eða brotaþola í ofbeldisbrotamálum. Umboðsmaður barna hefur áður vakið athygli á því að ofbeldisbrotamálum, þar sem börn hafa komið við sögu, hafi fjölgað nokkuð jafnt og þétt á seinustu árum en árið 2019 höfðu 20 börn stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli og 94 í ofbeldismáli. Þá hafði 91 barn stöðu brotaþola í kynferðisbrotamáli og 104 í ofbeldisbrotamáli. Þetta er alvarleg þróun og það er mikilvægt að stjórnvöld greini hvaða orsakir liggja til grundvallar þessari aukningu til þess að hægt sé að grípa til viðeigandi mótvægisaðgerða. Við allar tölur frá lögreglunni þarf að gera fyrirvara þar sem um er að ræða bráðabirgðatölur sem geta tekið breytingum aftur í tímann.

Barna- og fjölskyldustofa

Upplýsingar um bið barna eftir úrræðum á vegum BOFS eru frá 31. ágúst 2026.

MST - Það biðu 14 börn eftir þjónustu MST-teymis og meðalbiðtími var 56 dagar.

MST er meðferðarúrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12-18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda.

Stuðlar – Ekkert barn beið eftir þjónustu meðferðardeildar Stuðla né neyðarvistun.

Stuðlar eru meðferðarstöð fyrir börn og unglinga frá 12 til 18 ára, Stuðlar skiptast í tvær deildir, neyðarvistun og meðferðardeild.

Esja Það beið ekkert barn eftir að komast í meðferð í Esju.

Esja er meðferðarúrræði fyrir börn og unglinga sem rekið er á Vogi. Esja hét áður Blönduhlíð, í lok síðasta árs var tekin ákvörðun um að breyta nafninu á meðferðarheimilinu.

Bjargey - Það beið ekkert barn eftir plássi á Bjargey.

Bjargey er langtímameðferðarheimili sem er ætlað stúlkum og kynsegin. Meginmarkmið meðferðarheimilisins er einkum að veita sérhæfða meðferð vegna alvarlegra hegðunarerfiðleika og vímuefnaneyslu.

Styrkt fóstur - Það biðu 2 börn eftir því að komast í styrkt fóstur og meðalbiðtími var 10,5 dagar, ekkert barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði.

Styrkt fóstur er þegar þörf er fyrir sérstaka umönnun og þjálfun barns á fósturheimili í takmarkaðan tíma, að hámarki tvö ár. Gjarnan er um að ræða börn sem eiga við íþyngjandi tilfinninga- og hegðunarvanda að etja sem ekki hefur tekist að vinna bug á með öðrum og vægari hætti.

SÓK – Það beið ekkert barn eftir sálfræðiþjónustu hjá Barna- og fjölskyldustofu vegna óviðeigandi kynhegðunar.

SÓK-meðferð er sálfræðiþjónusta fyrir börn sem þurfa á aðstoð að halda vegna óviðeigandi eða skaðlegrar kynhegðunar. Barnaverndarþjónustur sveitarfélaga geta vísað áfram í úrræðið.

Barnahús

Í lok ágúst biðu 11 börn eftir meðferð í Barnahúsi vegna brota sem þau höfðu orðið fyrir. Brotin eru flokkuð eftir alvarleika í flokka 1 og 2. Tíu börn biðu eftir meðferð vegna brota í flokki 1 og eitt vegna brots í flokki 2. Meðalbiðtími var 34,6 dagar í flokki 1 og 20 dagar í flokki 2. Ekkert barnanna hafði beðið lengur en þrjá mánuði. Þá biðu fjögur börn eftir fjölskyldumiðaðri hugrænni atferlismeðferð (FM-HAM) og höfðu þrjú þeirra beðið lengur en þrjá mánuði.

Ráðgjafar- og greiningarstöð

Í ágúst 2026 biðu 455 börn á leikskólaaldri eftir greiningu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð, meðalbiðtími var 33,1 mánuðir og 388 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Jafnframt biðu 319 börn í grunn- og framhaldsskólum eftir greiningu. Meðalbiðtími í þeim hópi var 23 mánuðir og 309 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Í heildina biðu því 774 börn og 697 höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Jafnframt bíða 20 börn eftir ráðgjöf hjá ráðgjafarsviði Ráðgjafar- og greiningarstöðvar. Af þeim hafa 12 beðið lengur en þrjá mánuði.

Hlutverk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra.

Geðheilsumiðstöð barna (GMB)

Þann 1. september biðu 2.705 börn eftir þjónustu hjá GMB og höfðu 2.591 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Alls biðu 1.838 börn eftir athugun vegna gruns um ADHD, með eða án einhverfu, og var meðalbiðtíminn 30,7 mánuðir. Þá biðu 868 börn eftir athugun vegna gruns um einhverfu og var meðalbiðtíminn 38,3 mánuðir.

Rétt er að taka fram að sama barn getur verið á bið eftir þjónustu hjá fleiri en einu teymi GMB og því komið oftar en einu sinni fram í sundurliðun eftir teymum. Ekki er því hægt að leggja saman fjölda barna hjá einstökum teymum. Heildarfjöldinn, 2.705 börn, tekur mið af því að sama barn geti verið á fleiri en einum biðlista innan miðstöðvarinnar.

Barna- og unglingageðdeild (BUGL)

Í ágúst 2026 biðu 42 börn eftir þjónustu göngudeildar BUGL. Meðalbiðtími var þrír mánuðir og 31 barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði. Þar að auki biðu fjögur börn eftir átröskunarmeðferð á göngudeild. Meðalbiðtími þar var tveir mánuðir og ekkert barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði.

Göngudeild barna- og unglingageðdeildar veitir börnum og unglingum að 18 ára aldri þjónustu vegna geð- og þroskaraskana.

Heilsuskólinn

Í ágúst 2026 biðu 48 börn eftir að komast að hjá Heilsuskólanum. Meðalbiðtími var 6,5 mánuðir og 27 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði.

Heilsuskóli Barnaspítalans þjónar öllu landinu og aðstoðar börn og fjölskyldur þeirra sem eru 2,5 staðalfrávikum fyrir ofan meðalkúrfu í BMI eða börn sem hafa verið með mikla þyngdaraukningu á stuttum tíma. Í Heilsuskólanum eru fjölskyldum kenndar aðferðir til að takast á við þyngdarstjórnun og viðhalda breytingum ásamt því að bæta lífsgæði til lengri tíma. Leitast er við að hvetja börnin áfram með styðjandi hætti ásamt því að veita ráðgjöf um mataræði og hreyfingu.

Sálfræðiþjónusta á heilsugæslustöðvum

Sálfræðingar á heilsugæslustöðvum veita börnum meðferð vegna hegðunar- og tilfinningavanda ásamt því að veita foreldrum þeirra ráðgjöf. Um er að ræða 1. línu sálfræðiþjónustu.

  • Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Í byrjun september beið 153 barn eftir þjónustu sálfræðings hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og meðalbiðtími var 118 dagar. Þá höfðu 84 börn beðið lengur en þrjá mánuði. Börnum á biðlista hefur fækkað frá því í febrúar, úr 221 í 153. Á sama tíma hefur börnum sem beðið hafa lengur en þrjá mánuði fjölgað úr 78 í 84.

  • Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Í byrjun september biðu 206 börn eftir þjónustu sálfræðings hjá HSN, meðalbiðtími var 428 dagar(14 mánuðir) og 165 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Biðtími hjá HSN hefur lengst á seinustu árum. Þann 13. september 2024 beið 41 barn, þau börn sem biðu lengst þurftu að bíða í um 100 daga og tæplega 15 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði.

  • Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Í byrjun september beið ekkert barn eftir þjónustu sálfræðings hjá HVE. Meðalbiðtími var 7 dagar og ekkert barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði.

  • Heilbrigðisstofnun Austurlands

Í byrjun september biðu 12 börn eftir þjónustu sálfræðings hjá HSA. Meðalbiðtími var 185 dagar (6 mánuðir) og 9 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði.

  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Í byrjun september biðu 102 börn eftir þjónustu sálfræðings hjá HSU. Meðalbiðtími var 165 dagar og 72 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði.

  • Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Í byrjun september biðu 19 börn eftir þjónustu sálfræðings hjá HSS. Meðalbiðtími var 90 dagar og 4 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði.

  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Í byrjun september biðu þrjú börn eftir þjónustu sálfræðings hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Meðalbiðtími var 18 dagar og ekkert barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Í byrjun september biðu 276 mál meðferðar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu á grundvelli barnalaga og hjúskaparlaga. Málin varða hagsmuni 340 barna og hafa 130 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Ekki er unnt að gefa upp meðalbiðtíma þar sem hann er mjög mismunandi eftir tegund mála. Sum mál eru tekin til meðferðar innan nokkurra daga en önnur þurfa að bíða lengur. Elsta málið sem beið meðferðar hafði borist embættinu 12. mars 2026.

Hjá sýslumönnum um land allt biðu 199 mál sáttameðferðar. Til samanburðar voru þau 102 í september 2023 og 58 í febrúar sama ár. Málin varða hagsmuni 318 barna og hafa 73 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Lengsti biðtími mála sem ekki njóta forgangs var fimm mánuðir. Mál sem njóta forgangs, svo sem dagsektarmál og aðfararmál, eru tekin fyrr til meðferðar.

Þá biðu fimm mál meðferðar á grundvelli ættleiðingarlaga. Málin varða fimm börn og höfðu þrjú þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Málin höfðu að meðaltali beðið í 4,7 mánuði og hafði elsta málið beðið í tólf mánuði.

Jafnframt biðu 30 mál meðferðar á grundvelli lögræðislaga. Þau varða 30 börn og höfðu 16 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Ekki er unnt að tilgreina meðalbiðtíma þessara mála þar sem þeim er forgangsraðað eftir aðstæðum og þau mál sem ekki þola bið eru afgreidd eins fljótt og unnt er.

Auk þess biðu fimm önnur mál meðferðar hjá sérfræðingum á grundvelli barnalaga nr. 76/2003. Málin varða fimm börn og var meðalbiðtími 0,25 mánuðir. Ekkert þessara barna hafði beðið lengur en þrjá mánuði.

Á fjölskyldusviði sýslumanns eru meðal annars meðhöndluð erindi foreldra er varða framfærslu barna, umgengni, sambúðarslit, skilnað, skipta búsetu barns, forsjá, lögheimili eða utanlandsferð. Við meðferð þessara mála kann að reyna á sáttameðferð, ráðgjöf og fleiri úrræði samkvæmt barnalögum. Þá eru meðhöndluð þar mál á grundvelli ættleiðingarlaga og lögræðislaga. Börnin sjálf eru ekki aðilar þessara mála, í merkingu stjórnsýslulaga, en málin varða hagsmuni þeirra.

Talmeinafræðingar

Sjúkratryggingar Íslands gerðu úttekt á stöðu barna sem biðu eftir þjónustu talmeinafræðinga í desember 2021 en þá var 3.701 barn skráð á biðlista, þar af voru 947 börn skráð á fleiri en einum stað. Flest börn á biðlistum höfðu beðið í 0 – 6 mánuði (eða um 30%) en um 11% höfðu beðið lengur en tvö ár. Í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðuneytisins um þjónustu talmeinafræðinga við börn frá júní 2025 kemur fram að í lok árs 2024 hafi 4.865 börn beðið eftir annars stigs talmeinaþjónustu sem samsvari rúmlega 30% aukningu frá 2021. Að mati umboðsmanns barna ber stjórnvöldum að grípa til aðgerða með það að markmiði að koma í veg fyrir að börn þurfi að bíða eftir þjónustu talmeinafræðinga. Þar til því markmiði verður náð ber stjórnvöldum að sjá til þess að hægt sé að nálgast upplýsingar með reglubundnum hætti um það hversu mörg börn séu á biðlistum eftir þessari þjónustu. Slík upplýsingaöflun er grundvallarforsenda þess að hægt sé að leggja mat á stöðuna hverju sinni og grípa til viðeigandi aðgerða. Umboðsmaður barna fagnar því að í aðgerðaáætlun um bætta þjónustu talmeinafræðinga við börn 2026-2028 sé kveðið á um að koma á miðlægum biðlista eftir sérfræðiþjónustu talmeinafræðinga.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica