6. maí 2014

Könnun um starfsemi frístundaheimila

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á morgunverðarfundi um málefni frístundaheimila sem haldinn verður mánudaginn 12. maí 2014 kl. 8.00-10.45 í Hlöðunni, Frístundamiðstöðinni Gufunesbæ v/Gufunesveg í Grafarvogi.

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á morgunverðarfundi um málefni frístundaheimila sem haldinn verður mánudaginn 12. maí 2014 kl. 8.00-10.45 í Hlöðunni, Frístundamiðstöðinni Gufunesbæ v/Gufunesveg í Grafarvogi.

Á fundinum verður ný könnun á starfsemi frístundaheimila kynnt sem og vinna starfshóps um frístundaheimili á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis

Dagskrá:

8.00-8.20: Skráning og morgunverður

8.20-8.40: Kynning á nýrri könnun um starfsemi frístundaheimila haustið 2013.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

8.40-9.00: Starfshópur á vegum mennta- og menningarmálaráðuneyis um málefni frístundaheimila.
Guðni Olgeirsson sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti og formaður hópsins kynnir starf hans og helstu tillögur.

9.00-10.30: Umræður á borðum um nokkur atriði sem tengjast stefnumótun og löggjöf um frístundaheimili og setningu viðmiða um starfsemina.
Innleiðing: Fulltrúar úr starfhópnum.

10.30-10.45: Samantekt og slit.

Fundarstjóri, Þóra Melsteð deildarstjóri barnastarfs í Frístundamiðstöðinni Gufunesbæ

Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Þátttakendur eru beðnir að skrá sig á eftirfarandi slóð í síðasta lagi föstudaginn 9. maí nk.: http://www.samband.is/verkefnin/skolamal/skolathing-og-malstofur/fristundaheimili/ 

Leiðbeiningar um staðsetningu. Hlaðan tilheyrir frístundamiðstöðinni Gufunesbæ v/Gufunesveg í Grafarvogi. Þegar ekið er um Gullinbrú inn í Grafarvog er beygt til vinstri á ljósum við Gufunesveg og þá strax aftur til vinstri niður að gamla Gufunesbænum og þá sést í turninn við Hlöðuna.

Eftirtaldir aðilar standa að morgunverðarfundinum:  Félag fagfólks í frítímaþjónustu, Heimili og skóli, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélag Íslands, umboðsmaður barna og Æskulýðsvettvangurinn.


 

Eldri fréttir um frístundaheimili á vef umboðsmanns barna:

Þörf á löggjöf um frístundaheimili í skoðun, dags. 18. janúar 2013.

Skortur á reglum um lengda viðveru - Bréf, dags 19. desember 2012.

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica