19. maí 2026

Heimsókn embættisins í JL húsið

Skrifstofa umboðsmanns barna heimsótti í dag búsetuúrræði á vegum Vinnumálastofnunar í JL húsinu til þess að kynna sér umhverfi barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Starfsfólk embættisins heimsótti JL húsið og fékk kynningu á starfsemi Vinnumálastofnunar. Í húsinu er móttaka Vinnumálastofnunar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og jafnframt hafa umsækjendur kost á húsnæði þar á meðan umsóknir þeirra eru til meðferðar hjá Útlendingastofnun.

Nokkrar fjölskyldur sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd búa í húsinu. Eins og umboðsmaður barna hefur áður bent á þá standa þessum börnum sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd ekki til boða að sækja leikskóla, frístundir eða tómstundir. Umboðsmaður barna hefur áhyggjur af stöðu þessara barna og vildi því kynna sér nánar það umhverfi og úrræði sem standa þeim til boða í JL húsinu. Þá átti umboðsmaður barna góðan fund með starfsfólki Vinnumálastofnunar þar sem farið var yfir málefni barna sem sækja alþjóðlega vernd á Íslandi. Umboðsmaður þakkar kærlega fyrir góðar mótttökur.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica