Þörf á endurskoðun á þjónustu við börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd
Að mati umboðsmanns barna samræmist það ekki 2., 6., 28. og 31., gr. Barnasáttmálans að börnum sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd standi ekki til boða að sækja leikskóla, frístund og tómstundir.
Umboðsmaður barna sendi bréf til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins í janúar sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um þjónustu við börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Þann 2. mars barst embættinu svar frá ráðuneytinu. Í bréfi ráðuneytisins segir að börnum sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd standi almennt ekki til boða að sækja leikskóla, frístundir eða tómstundir. Því til rökstuðnings er vísað til 33. gr. laga um útlendinga.
Umboðsmaður barna sendi annað bréf til ráðuneytisins þann 12. mars sl. Í bréfinu kemur fram að Umboðsmaður barna hafi miklar áhyggjur af stöðu barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd og telur áríðandi að ráðuneytið endurskoði þjónustu við börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Embættið telur ekki fullnægjandi að líta eingöngu til 33. gr. laga um útlendinga því börn eigi réttindi samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 19/2013. Samkvæmt ákvæðum Barnasáttmálans ber stjórnvöldum að tryggja hverju barni á Íslandi þau réttindi sem kveðið er á um í sáttmálanum, án mismununar af nokkru tagi.
Hægt er að lesa bréf umboðsmanns barna frá 12.03.2026 hér.