Ráðgjafarhópur fundar með ráðherra
Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna átti fund með mennta- og barnamálaráðherra um málefni jaðarsettra hópa.
Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna átti fund með Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra þann 1. september sl., þar sem rætt var um þörf á aukinni fræðslu í skólum um málefni jaðarsettra hópa. Börn og ungmenni hafa kallað eftir slíkri fræðslu og lagt áherslu á að hún sé samræmd milli skóla þannig að öll börn standi jafnt að vígi.
Ráðgjafarhópurinn hefur áður tekið málefnið upp við mennta- og barnamálaráðherra. Árið 2024 fundaði hópurinn með þáverandi ráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, um sama efni. Hægt er að lesa um þann fund hér. Á fundinum með Ingu Sæland fylgdi ráðgjafarhópurinn málinu eftir og áréttaði þær áherslur sem börn og ungmenni hafa áður komið á framfæri.
Fundurinn gekk vel og mun ráðgjafarhópurinn, sem og umboðsmaður barna, fylgja honum vel eftir.
Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna samanstendur af ungmennum á aldrinum 12 – 17 ára og er umboðsmanni barna meðal annars til ráðgjafar um málefni sem varða börn og ungmenni.
