Að ræða við börn um neyðarástand
Í tilefni af útgáfu bæklings almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Verum viðbúin, hefur umboðsmaður barna tekið saman leiðbeiningar um samtöl við börn um viðbúnað og neyðarástand. Þeim er ætlað að styðja foreldra, forsjáraðila og aðra fullorðna við að veita börnum upplýsingar og ræða við þau á yfirvegaðan hátt.
Börn eiga sjálfstæðan rétt til upplýsinga samkvæmt Barnasáttmálanum. Stjórnvöldum ber því að tryggja að börn hafi aðgang að skýrum og barnvænum upplýsingum um viðbúnað og neyðarástand. Ekki nægir að upplýsa eingöngu foreldra og forsjáraðila.
Í leiðbeiningunum er meðal annars lögð áhersla á að hlusta á börn, taka spurningar þeirra og áhyggjur alvarlega og laga upplýsingagjöf að aldri, þroska og aðstæðum hvers barns. Jafnframt er áréttað að ábyrgðin á undirbúningi og öryggi hvíli á fullorðnum. Þá leggur umboðsmaður barna einnig áherslu á að stjórnvöld útbúi barnvænt upplýsingaefni um viðbúnað og neyðarástand.
Hægt er að lesa leiðbeiningarnar hér.