Að ræða við börn um neyðarástand
Ráð til foreldra, forsjáraðila og annarra fullorðinna sem starfa með börn
Efnisyfirlit
- Börn eiga sjálfstæðan rétt til upplýsinga
- Samtöl við börn um viðbúnað og neyðarástand
- Byrjið á að hlusta
- Verið hreinskilin og takið mið af aldri barnsins
- Takið áhyggjur barnsins alvarlega
- Ræðið viðbúnað á einfaldan og yfirvegaðan hátt
- Hjálpið barninu að átta sig á upplýsingum
- Gefið ykkur tíma til samveru og samtals
- Takið mið af reynslu og aðstæðum hvers barns
Börn eiga sjálfstæðan rétt til upplýsinga
Börn eiga sjálfstæðan rétt til upplýsinga samkvæmt 13. og 17. gr. Barnasáttmálans. Aðgangur að upplýsingum er jafnframt mikilvæg forsenda þess að börn geti tjáð skoðanir sínar og haft áhrif á mál sem þau varða, í samræmi við 12. gr. sáttmálans. Stjórnvöldum ber því að tryggja að börn hafi aðgang að barnvænum upplýsingum um viðbúnað og neyðarástand. Það nægir ekki að upplýsa foreldra og forsjáraðila og treysta á að upplýsingarnar berist þaðan til barnanna. Þessi sjónarmið eru jafnframt áréttuð í sameiginlegri yfirlýsingu norrænna umboðsmanna barna um almannavarnir frá árinu 2026, þar sem lögð er áhersla á rétt barna til upplýsinga og þátttöku í undirbúningi og viðbrögðum við neyðarástandi.
Upplýsingarnar þurfa að vera skýrar, áreiðanlegar og aðgengilegar og taka mið af aldri og þroska barna. Það er mikilvægt að börn skilji hvaða áhrif ráðstafanir geta haft á daglegt líf þeirra, viti hvar þau geti nálgast frekari upplýsingar og hvert þau geti leitað með spurningar. Einnig þarf að hafa samráð við börn um hvaða upplýsingar þau þurfa og hvernig best sé að koma þeim á framfæri.
Reynsla barna úr Grindavík undirstrikar mikilvægi þess að börn fái upplýsingar sem taka mið af þeirra sjónarhorni. Á fundi með umboðsmanni barna árið 2024 kölluðu þau eftir betri upplýsingagjöf og skýrari útskýringum og lögðu meðal annars til að haldnir yrðu sérstakir íbúafundir fyrir börn og ungmenni.
Samtöl við börn um viðbúnað og neyðarástand
Byrjið á að hlusta
Spyrjið barnið hvað það hafi heyrt eða séð og hvað því finnist um það. Til dæmis: „Er eitthvað sem þú vilt að ég útskýri?“ Gefið barninu tíma til að svara og leyfið því að ráða hvað það vill ræða. Gerið ekki ráð fyrir að barnið hafi sömu áhyggjur og fullorðnir. Mikilvægt er að gefa barninu kost á að ræða málin án þess að þrýsta á það.
Verið hreinskilin og takið mið af aldri barnsins
Notið einfalt og skýrt mál og miðlið upplýsingum í hæfilegum skömmtum. Yngri börn þurfa gjarnan stuttar og áþreifanlegar útskýringar en eldri börn kunna að vilja ræða málin nánar. Gangið úr skugga um að barnið skilji það sem sagt er. Ef þið vitið ekki svarið við spurningu er best að viðurkenna það og leita áreiðanlegra upplýsinga saman. Forðist ágiskanir og loforð sem ekki er hægt að standa við.
Takið áhyggjur barnsins alvarlega
Hlustið á barnið án þess að gera lítið úr ótta þess eða öðrum tilfinningum. Útskýrið það sem er vitað um aðstæður og hvað sé gert til að gæta öryggis. Börn taka eftir viðbrögðum fullorðinna og geta orðið fyrir áhrifum af áhyggjum þeirra. Ef þið hafið sjálf miklar áhyggjur getur verið gagnlegt að ræða þær fyrst við annan fullorðinn svo þær ráði ekki ferðinni í samtalinu við barnið.
Ræðið viðbúnað á einfaldan og yfirvegaðan hátt
Útskýrið að viðbúnaður snúist um að vita hvernig bregðast eigi við óvæntum aðstæðum. Undirbúningur þýðir ekki að neyðarástand sé yfirvofandi. Ræðið einföld og hagnýt atriði, svo sem við hvern barnið geti haft samband og hvernig fjölskyldan bregðist við rafmagnsleysi. Leyfið barninu að taka þátt í undirbúningnum í samræmi við aldur þess og þroska, til dæmis með því að hjálpa til við að finna vasaljós. Ábyrgðin á undirbúningi og öryggi hvílir þó ávallt á fullorðnum.
Hjálpið barninu að átta sig á upplýsingum
Ræðið við barnið um það sem það sér á netinu og skoðið saman hvaðan upplýsingar koma. Leitið svara hjá traustum aðilum, svo sem almannavörnum, og útskýrið að það sem birtist á samfélagsmiðlum er ekki alltaf rétt. Mikilvægt er að hlífa börnum við ógnvekjandi myndefni og endurtekinni fréttaumfjöllun. Hjálpið þeim að taka hlé frá fréttum og samfélagsmiðlum án þess að loka á spurningar þeirra.
Gefið ykkur tíma til samveru og samtals
Samvera er alltaf mikilvæg fyrir börn og getur skapað góð tækifæri til að ræða það sem þeim liggur á hjarta. Börn þurfa mismikinn tíma til að átta sig á upplýsingum um viðbúnað og neyðarástand og nýjar spurningar eða áhyggjur geta vaknað síðar. Minnið barnið á að það geti alltaf leitað til ykkar með spurningar eða áhyggjur. Fylgist áfram með líðan þess og verið tilbúin að ræða málin aftur þegar barnið hefur þörf fyrir það.
Takið mið af reynslu og aðstæðum hvers barns
Börn bregðast með ólíkum hætti við umræðu um neyðarástand. Þau sem hafa upplifað hamfarir, misst heimili sitt eða eiga nákomna á svæðum þar sem neyð ríkir geta þurft sérstakan stuðning. Sum börn eiga auðveldara með að tjá hugsanir sínar og tilfinningar í leik eða með teikningum en í samtali. Aðlagið því samskiptin að aldri, þroska, reynslu og þörfum hvers barns.
Ef áhyggjur barns eru viðvarandi eða hafa áhrif á svefn, skólasókn eða daglegt líf er rétt að leita frekari stuðnings, til dæmis hjá heilsugæslu.
