Upplýsingar um bið eftir þjónustu

Umboðsmaður barna starfar samkvæmt lögum um umboðsmann barna nr. 83/1994 og hefur það hlutverk að standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi barna. Liður í því er að afla og miðla gögnum og upplýsingum um aðstæður barna og stöðu tiltekinna hópa barna hverju sinni í samvinnu við ýmsa aðila. 

  • Þessar tölur sína stöðuna eins og hún var í lok árs 2021, nýrri upplýsingar má finna hér

Í árslok 2021 kallaði umboðsmaður barna eftir upplýsingum um fjölda barna sem bíða eftir þjónustu hjá neðangreindum aðilum. Embættið mun í framhaldinu kalla eftir slíkum upplýsingum með reglulegum hætti og birta hér til að gefa raunhæfa mynd af stöðunni hverju sinni. 

barn með vatnsflösku

Bið eftir þjónustu

Barna- og fjölskyldustofa (áður barnaverndarstofa)

Des. 2021 Fjöldi barna Meðalbiðtími (dagar)

Fjöldi barna sem hafa beðið lengur en 3 mánuði

Stuðlar, meðferðardeild  7  49,25  1
Stuðlar, neyðarvistun 0 0 0
Lækjarbakki, langtímameðferð 1 33,8  0
 Styrkt fóstur* 7 40,63  1
 MST** 13 76 11
 SÓK 4  33,4 0

* ATH ekki er um eiginlega biðlista að ræða í styrktu fóstri. Ferlið fer þannig fram að sótt er um styrkt fóstur og þá hefst vinna við að finna fósturforeldra sem henta þörfum barnsins. 

** Í MST starfa þrjú teymi með fjórum meðferðaraðilum hvert. Teymin geta haft um 48-60 mál í meðferð hverju sinni fyrir utan sumarleyfistímann. Umsóknir sem koma inn að vori gætu þ.a.l. þurft að bíða lengur. Meðal biðtími í MST úrræðið getur verið 3 - 5 mánuðir. Biðtími í málum sem byrjuðu í meðferð á tímabilinu 1. júní til 31. desember 2022.

Barnahús

Des. 2021 Fjöldi barna Meðalbiðtími
(dagar)
Fjöldi barna sem hafa beðið lengur en 3 mánuði
Skýrslutaka 0 0 0
Könnunarviðtal* 1-14 0
Meðferð** 38 - -
Flokkur 1 23 49  1
Flokkur 2 13 67 4
Flokkur 3 2 202 2

* Í könnunarviðtali er í mesta lagi 2ja vikna bið (nánari upplýsingar liggja ekki fyrir).

** Brotin eru flokkuð eftir alvarleika, frá 1-3 þar sem stysta biðin er í flokki 1.

Tölur miðast við 31. desember 2021

Börnum er úthlutaður mánuður í meðferð, ekki liggja fyrir upplýsingar um nákvæma dagsetningu upphafs meðferðar og því miða tölurnar við 15. hvers mánaðar til að reikna meðalbiðtíma. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Ekki er hægt að kalla fram upplýsingar úr gagnagrunni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um hversu lengi börn sem eru sakborningar eða brotaþolar bíða eftir fyrsta viðtali en vonir standa til að það verði hægt innan tíðar. Upplýsingar í töflunni sýna því fjölda barna sem eru með stöðu sakbornings eða brotaþola í kynferðisbrota- og ofbeldismálum eftir árum. 

Sakborningar - ólögráða*

Des. 2021   2015  2016 2017   2018 2019   2020  2021**
Kynferðisbrot  7 14  14   16  18 19  17 
Ofbeldisbrot 71   74 96  99  94  101  114 

Brotaþolar - ólögráða*

 Des. 2021 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021**
Kynferðisbrot 67 72 46 53 89 59 118
Ofbeldisbrot 114 90 104 91 100 98 129 

* Ólögráða, þ.e. börn yngri en 18 ára við stofnun máls. 

** Það sem af er ári, tölur unnar á bilinu 20. - 22. desember. 

Geðheilsumiðstöð barna (áður Þroska- og hegðunarstöð)

 Des.2021 Fjöldi barna

Meðalbiðtími, mánuðir  Fjöldi barna sem hafa beðið lengur en 3 mánuði
6 - 18 ára sem bíða eftir greiningu 738 (12 - 14) 544

Nýjar tölur unnar í desember 2021

*Bið eftir ADHD greiningun. Bið eftir einhverfugreiningu er 22 - 24 mánuðir.

Ráðgjafar- og greiningarstöð

 Des. 2021 Fjöldi barna á bið eftir þverfaglegri greiningu Meðalbiðtími (mánuðir) 

Fjöldi barna á bið eftir fyrstu aðkomu ráðgjafa

Fjöldi barna sem hafa beðið lengur en 3 mánuði
Yngri barna-svið 226  19 53 220
Eldri barna-svið 100 12-14 - 100

 

Barna- og unglingageðdeild LSH

  Fjöldi barna  Meðalbiðtími - mánuðir
Fjöldi barna sem hafa beðið lengur en 3 mánuði 
Göngudeild A og B teymi 77 7,7 59
Transteymi BUGL 39 11,1 27
Átröskunarteymi BUGL 17 5,3 9

 

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Mál er varða hag barna, barn ekki aðili máls.

Á fjölskyldusviði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu (SMH) eru m.a. meðhöndluð erindi foreldra er varða framfærslu barna, umgengni, sambúðarslit, skilnað, skipta búsetu, forsjá, lögheimili eða utanlandsferð. Við meðferð slíkra mála kann að reyna á sáttameðferð, ráðgjöf og fleiri úrræði samkvæmt barnalögum. Þá eru einnig meðhöndluð mál sem varða hagsmuni barna á grundvelli ættleiðingarlaga og lögræðislaga.

Mál hjá SMH á grundvelli barnalaga eða hjúskaparlaga, sem hafa stofnast en bíða meðferðar, þar sem aðilar máls eiga barn eða börn sem erindi foreldra varðar eru eftirfarandi:

 Des. 2021 Fjöldi mála er bíður meðferðar hjá SMH Fjöldi barna í þeim málum

Meðalbiðtími í mánuðum talið, frá því mál stofnast og þar til það er tekið til meðferðar.

Fjöldi barna sem hafa beðið lengur en 3 mánuði 
Mál SMH á grundvelli barnalaga og hjúskaparlaga 26 32 0,5  0
Mál SMH á grundvelli ættleiðingarlaga 0 0 0  0

Mál SMH á grundvelli lögræðislaga

0 0 0  0
Sáttameðferð (allir sýslumenn) 96 144 2,5  14
Önnur mál sérfræðinga skv. barnalögum (allir sýslumenn) 10 11 0,5  0

Bið barna eftir þjónustu:

 des. 2021 Fjöldi mála er bíður meðferðar hjá SMH Fjöldi barna í þeim málum

Meðalbiðtími í mánuðum talið, frá því mál stofnast og þar til það er tekið til meðferðar.

Fjöldi barna sem hafa beðið lengur en 3 mánuði
Mál skv. 46. gr. b. barna-laga 152 152 17 143
Viðtal við barn
skv. 74. gr. barnalaga
8 11 0,5 0

 

  • Samkvæmt 46. gr. b. barnalaga nr. 76/2003 ber sýslumanni að bregðast við ef barn missir foreldri sitt með því m.a. að kanna tengsl barns við vandamenn, veita barni og forsjáraðila tækifæri til að mæta á fund sýslumanns ásamt því að veita leiðbeiningar um umgengnisrétt. Ákvæðið kom inn í barnalög með lögum nr. 50/2019 en ekki fylgdi fjármagn með verkefninu.
  • Nánari útfærslu á framkvæmd þjónustunnar má finna í reglugerð nr. 1450/2021 um ráðgjöf, sáttameðferð og samtal að frumkvæði barns á grundvelli barnalaga sem tók gildi 1.1.2022.
  • Samkvæmt 74. gr. barnalaga 76/2003 getur sýslumaður óskað eftir því við sérfræðing að taka viðtal við barn og gera um það skýrslu. Fjöldi slíkra beiðna og staða mála á bið á landinu öllu má finna í ofangreindri töflu.
  • Biðtími er talinn frá því að mál stofnast og þar til það er tekið til meðferðar.

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica